Tilboð
-48%
B-VARA

Samsung Q-Drive þvottavél

Lagerstaða: Til á lager

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

119.950 kr 229.975 kr

  • B-VARA. B-Vara er tæki sem hefur verið tekið til baka og getur verið útlitsgallað eða lítið notað. Tækið er yfirfarið og prófað og með fullri ábyrgð. Fáðu nánari upplýsingar hjá sölumanni. 

 

Ástæða: Viðgerð vél / Sló oft út og vildi stundum ekki opna sig eftir þvott / Búið að gera við Vél virkar Vel / Dæld vinstrameginn niðri

 

Sannkallað meistaraverk frá Samsung sem passar uppá fötin þín. Notast við AI Wash og AI Control gervigreind til þess að þvo fötin þín við allra bestu skilyrði og aðlagast þínum þvottavenjum. Q-Drive mótorinn sparar þér tíma og EcoBubble sér til að fötin þín þvoist vel og endast lengur.
Það að auki er vélin útbúin Hygienic Cleaning sótthreinsadi kerfi og Drum Clean+ bakteríu og sveppa eyðandi sjálfshreinsikerfi
SmartThings appið gerir allar stillingar aðgengilegar úr símanum. 

 

Það helsta: 

  • Íslenskt stjórnborð - Takkar og skýringar framan á vél eru á íslensku
  • SmartThings – Tengdu vélina við WiFi. Þú getur stjórnað vélinni frá símanum þínum og stuðst við þvottaleiðbeiningar og rétt kerfaval. Fylgstu jafnframt með framvindu og tíma og með sinntu nauðsynlegu viðhaldi s.s. tromluhreinsun eða fáðu bilanagreiningu.
  • XXL 9 kg hleðslugeta
  • 1600 snúninga stillanlegur vinduhraði 
  • Kolalaus Digital Inverter hágæðamótor - lengri ending, minna slit, hljóðlátari og hraðvirkari. 10 ára ábyrgð.
  • AI Control - þvottavélin lærir á þig og aðlagast að þínum þörfum og óskum
  • AI Wash - fjórir skynjara mæla tauið, vatnið og óhreinindi í rauntíma og skammtar þvottaefni í takt við það
  • QuickDrive™ - tromla snýst í gagnstæðar áttir.  Árangurinn er allt að 50% tímasparnaður með sama árangri og venjuleg hefðbundin þvottakerfi eldri véla
  • Eco Bubble™ – þvottaefni leystist upp undir þrýstingi og breytist úr dufti í sápukvoðu sem blandast hraðar í þvottinn. Þvotturinn verður hreinni, jafnvel við mjög lágt hitastig.
  • BubbleSoak™ - valkvætt forþvottakerfi og hentar fatnaði með erfiða bletti. Þvotturinn er lagður í bleyti í sápufroðu, sem fjarlægir blettina
  • 15 mínútna hraðkerfi -  fyrir lítið magn og minna óhreint tau
  • Swirl+ tromla - lágmarkar slit og verndar viðkvæman fatnað
  • Eco Drum Clean+ – 70°C tromluhreinsun sem heldur vélinni lyktalausri og fyrirbyggir sveppagróður og óhreinindi í þvottakari. Eyðir 99,9% af bakteríum
  • Góð sérkerfi þ.á.m.ull, barnaföt og rúmföt
  • Hygienic Cleaning sótthreinsandi gufukerfi til að drepa bakteríur og ofnæmisvalda

Og allt hitt: 

  • ​​​LED skjár sem sýnir framvindu þvottakerfis
  • Framstillt ræsing möguleg 1-24 klukkustundir
  • XL 32 cm hurðarop með allt að 160° opnun
  • Barnalæsing á hurð og stjórnborði
  • Þvottakerfi: Eco 40-60, AI wash, Super speed (39 mins), 15' Quick wash, Íþróttaföt, Barnaföt, Rúmföt, Cloudy Day, Bómull, Litað, Viðkvæmt, Gallaefni, Vinda/tæming, Drum Clean+, Hygiene Gufa, Intense Kalt, Útiföt, Skol, Skyrtur, Hlóðlátt, Gerfiefni, Handkæði, Ull
  • Val um Intensive, forþvott,  Bubble Soak, Easy Iron
  • Mishleðsluskynjun - vélin fylgist grannt með þyngdarmisjöfnun í tromlunni og leitast við að jafna tauið út og lágmarka átök við þeytivindu
  • Öflug skoltækni sem byggir á skolun og stuttri vindu til skiptis
  • Keramíkhúðað hitaelement - betri ending og minni tæring
  • Stay Clean Drawer - sjálfhreinsandi skúffa fyrir þvottaefni

Og það tæknilega: 

  • Hljóð aðeins 52 dB(A) í þvotti og 75 dB(A) í þeytivindu
  • Orkunýtni A - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
  • Þvottahæfni A
  • Vinda A
  • H x B x D: 85 x 60 x 60 cm

Aukaefni

  • Leiðbeiningar á ensku má nálgast hér 

 

 

Vörunúmer: B-VARA-WW90T986ASH-26 Flokkur: ÞVOTTAVÉLAR, RAFHA OUTLET,