Um rafha.is

 
Seljandi er Rafha ehf, kt. 530390-1019, Suðurlandsbraut 16, 108 Reykjavík. 
 
Eftirfarandi gildir um notkun á vefversluninni rafha.is. 
 
Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu. Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, birtingar- og innsláttarvillur í texta og/eða myndum á vefsvæði sínu.
 
Seljandi áskilur sér rétt til þess að aflýsa í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld.
Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru án fyrirvara en verð eru almennt breytileg vegna samkeppni, verðbreytinga birgja og/eða gengisbreytinga hverju sinni. Það verð gildir er fram kemur á pöntunarstaðfes­tingu kaupanda hverju sinni.