Liebherr Vinidor vínkælir

Lagerstaða: Uppselt

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

939.950 kr

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

Einstaklega vandaður Liebherr Vinidor vínkælir með tvö aðskilin hitasvæði.

Rakastýring
 

Hægt er að velja milli tveggja rakastillinga til að varðveita korkinn í víntöppunum.

 

 

Tvö hitasvæði

Nýttu skápinn til fulls með tveimur stillanlegum hitasvæðum sem tryggja kjörið hitastig hvort sem um ræðir hvítt eða rautt vín. 

TempProtect Plus

Tvöföld vörn með tveimur hitaskynjurum sem mæla innra hitastig og tryggja að vínið haldist á réttum hita. Þó einungis annar skynjarinn nemi varhugaverða breytingu lætur skápurinn strax vita.

UVProtect Plus

Þreföld vörn gegn útfjólubláum geislum. Skyggt gler er parað með tveimur lögum af málm-húðun til að veita ennþá sterkari vörn.

VibrateSafe 

Einstaklega hljóðlát pressa með stöðugum beykihillum minnkar titring og geymir vínið í ró og næði. 

 

Almennt

  • Orkuflokkur F
  • Stafrænt stjórnborð með skjá
  • Aðvörunarhljóð og ljós ef hurðir eru skildar eftir opnar
  • Hljóð 35 dB(A)
  • Hægt að víxla hurðum

Kælihluti

  • Rúmmál 276  lítrar (nettó) 
  • 2 aðskilin kælisvæði - 5-20°C og 5-20°C
  • Kælipressan í þessum skáp er búin þeim eiginleika að hægt  er að víxla hitasvæðum á milli rauðvíns og hvítvíns
  • 204 Bordeaux flöskur
  • Hægt að víxla hurðaropnun
  • 9 útdraganlegar flöskuhillur úr beyki
  • Hitastillir
  • Kjöraðstæður fyrir rauðvín eða hvítvín
  • Hljóð aðeins 35 dB(A)
  • Hvít Led lýsing
  • Tvöfalt gler í hurð, UV vörn og málmhúðun til að tryggja hámarks einangrun og enn stöðugra hitastig
  • Kolasía til að eyða lykt og tryggja góð loftgæði
  • Sérhönnuð kælivél með lágmarksvíbring
  • Svartur
  • Orkuflokkur F - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
  • HxBxD: 201,3 x 69,7 x 76,4 cm

 

Um Liebherr

Liebherr er ekki aðeins einn stærsti framleiðandi í heiminum á ýmis konar á iðnaðartækjum s.s. byggingakrönum og beltagröfum heldur einnig leiðandi á öðrum hátæknisviðum með yfir 42.000 starfsmenn sem starfa í 130 fyrirtækjum víðsvegar um heim og samanlagða veltu uppá 9 milljarða evra. Kæliskáparnir frá Liebherr hafa verið framleiddir í yfir 60 ár eftir ströngustu gæðakröfum í Ochenhausen í Þýskalandi og raðað til sín verðlaunum fyrir gæði, hönnun og endingu. Liebherr framleiðir flestöll kælitæki fyrir Miele.

 

 

 

Vörunúmer: WPgbi7472 Flokkur: Kæli- & frystitæki, KÆLISKÁPAR, Vínkælar,