GLEÐILEGT SUMAR! -15% AFSLÁTTUR AF FLESTUM VÖRUM MEÐ AFSLÁTTARKÓÐA: SUMAR
LÝKUR EFTIR 0 KLST. 0 MÍN. 0 SEK.

Liebherr Vinidor vínkælir

Lagerstaða: Sérpöntun

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

999.950 kr

Einstaklega vandaður Liebherr Vinidor vínkælir með tvö aðskilin hitasvæði.

TipOpen
 

Handfangalaus opnun sem gefur skápnum saumlaust útlit. Nóg er að ýta léttilega við hurðinni og hún hallast sjálf til að hægt sé að opna. Sé ekki tekið í hurðina innan 3ja sekúndna, lokast hún aftur með mjúklokun.

 

 

Tvö hitasvæði

Nýttu skápinn til fulls með tveimur stillanlegum hitasvæðum sem tryggja kjörið hitastig hvort sem um ræðir hvítt eða rautt vín. 

TempProtect Plus

Tvöföld vörn með tveimur hitaskynjurum sem mæla innra hitastig og tryggja að vínið haldist á réttum hita. Þó einungis annar skynjarinn nemi varhugaverða breytingu lætur skápurinn strax vita.

UVProtect Plus

Þreföld vörn gegn útfjólubláum geislum. Skyggt gler er parað með tveimur lögum af málm-húðun til að veita ennþá sterkari vörn.

VibrateSafe 

Einstaklega hljóðlát pressa með stöðugum beykihillum minnkar titring og geymir vínið í ró og næði. 

 

Almennt

  • Orkuflokkur G
  • Stafrænt stjórnborð með skjá
  • Aðvörunarhljóð og ljós ef hurðir eru skildar eftir opnar
  • Hljóð 32 dB(A)
  • Hægt að víxla hurðum

Kælihluti

  • Rúmmál 276  lítrar (nettó) 
  • 2 aðskilin kælisvæði - 5-20°C og 5-20°C
  • Kælipressan í þessum skáp er búin þeim eiginleika að hægt  er að víxla hitasvæðum á milli rauðvíns og hvítvíns
  • 83 Bordeaux flöskur
  • Hægt að víxla hurðaropnun
  • 10 útdraganlegar flöskuhillur úr beyki
  • Hitastillir
  • Kjöraðstæður fyrir rauðvín eða hvítvín
  • Hljóð aðeins 32 dB(A)
  • Hvít Led lýsing
  • SideLight - LED lýsing í hliðum skápsins
  • Tvöfalt gler í hurð, UV vörn og málmhúðun til að tryggja hámarks einangrun og enn stöðugra hitastig
  • Kolasía til að eyða lykt og tryggja góð loftgæði
  • TipOpen hurð
  • Sérhönnuð kælivél með lágmarksvíbring
  • Þessi vínkælir er til innbyggingar.
  • Svartur
  • Orkuflokkur G - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
  • HxBxD:177,2 - 178 x 56 - 57 x 55 cm

 

Um Liebherr

Liebherr er ekki aðeins einn stærsti framleiðandi í heiminum á ýmis konar á iðnaðartækjum s.s. byggingakrönum og beltagröfum heldur einnig leiðandi á öðrum hátæknisviðum með yfir 42.000 starfsmenn sem starfa í 130 fyrirtækjum víðsvegar um heim og samanlagða veltu uppá 9 milljarða evra. Kæliskáparnir frá Liebherr hafa verið framleiddir í yfir 60 ár eftir ströngustu gæðakröfum í Ochenhausen í Þýskalandi og raðað til sín verðlaunum fyrir gæði, hönnun og endingu. Liebherr framleiðir flestöll kælitæki fyrir Miele.

 

 

 

Vörunúmer: EWTGB3583 Flokkur: Kæli- & frystitæki, KÆLISKÁPAR, Vínkælar,