Styrkur eða gáfur?
Þú þarft ekki að velja þegar kemur að þessari vél! Með sterkum Direct Drive motor, 11kg hleðslugetu og gervigreind sem hámarkar þvottagæðin getur þú fengið sem allra mest út úr þvottavélinni .þinni.

AI DD™ gervigreind
AI DD™ gervigreindin í þvottavélinni ákvarðar ekki bara þyngdina á þvottinum, heldur aðlagar tromluhreyfingarnar einnig út frá efnisgerð fatnaðarins sem er settur í vélina.

Sótthreinsandi gufukerfi
Sótthreinsandi gufukerfi sem fjarlægir 99,9% af öllum bakteríum og örverum.

TurboWash™360°
Með TurboWash™360° færð þú fullkominn þvott á aðeins 39 mínútum. Vélin sprautar vatni á 4 mismunandi stöðum á sama tíma svo dreifing á vatni og þvottaefni er með besta móti.
Ryðfrí tromla

Fáðu meira úr þvottinum
Með 11kg XXL tromlu kemur þú meira í vélina í samanburði við hefðbundna þvottavél
Fáðu góða yfirsýn
LG þvottavél með byltingarkenndum DirectDrive kola- og reimalausum mótor. . Gervigreind sér svo um að vega og meta aðstæður í rauntíma til að fara sem best með fötin þín svo þau endist sem lengst.
Það helsta:
- XXL 11 kg hleðslugeta
- 1400 snúninga stillanlegur vinduhraði
- DirectDrive™ - Beindrifinn kolalaus mótor án reimar sem endist í áraraðir. Færri slitfletir, minni víbringur og hljóðlátari
- AI DD ™ - vegur og metur aðstæður á þvotti og aðlagar hita, snúning o.fl eftir þörfum
- WaveLifter tromla - lágmarkar slit og verndar viðkvæman fatnað
- TurboWash™ 360° þvær á mettíma eða aðeins 39 mínútum. Vatni er sprautað á þvottinn úr fjórum áttum
- Steam™ djúphreinsun sem nær að fjarlægja allt að 99,9% af ofnæmisvöldum
Og allt hitt:
- LED skjár sem sýnir framvindu þvottakerfis
- Framstillt ræsing möguleg 3-19 klukkustundir
- XL hurðarop
- Barnalæsing á hurð og stjórnborði
- Þvottakerfi: bómull, bómull eco 40-60, gerviefni, Allergy Care, Quick 14 hraðkerfi, ull/handþvottur, blandaðir litir, sængurfatnaður, sportfatnaður, vistað kerfi,
- Val um TurboWash, gufu, Rinse+ aukaskolun, framstillta ræsngu,
- Mishleðsluskynjun - vélin fylgist grannt með þyngdarmisjöfnun í tromlunni og leitast við að jafna tauið út og lágmarka átök við þeytivindu
- Öflug skoltækni sem byggir á skolun og stuttri vindu til skiptis
Og það tæknilega:
- Hljóð 71 dB(A) í þeytivindu
- Tromlustærð 68 lítrar
- Orkuflokkur A - Sjá nánar um orkumerkingar ESB
- Vinda A
- H x B x D: 85 x 60 x 56,5 cm (62cm með hurð)