Hagstæð og einföld innbyggjanleg uppþvottavél frá Electrolux með AirDry sjálfvirkri opnun.
Það helsta:
- XXL að innan, pláss fyrir allt uppvaskið í einu og allt að 34 cm háa diska, potta eða aðra stóra hluti
- AirDry öflug þurrkun sem opnar hurð vélarinnar í lok þvottakerfisins sem gerir þurrkunina allt að þrisvar sinnum betri en áður
Og allt hitt:
- 8 þvottakerfi þ.á.m. 160 mín kerfi, 60 mín kerfi, 90 mín kerfi, AUTO Sense kerfi, sparnaðarkerfi, Machine Care og Quick 30 kerfi
- Hraðkerfi 30 mínútur
- Framstillt ræsing um allt 1-24 klst.
- Hækkanleg/lækkanleg efri þvottakarfa
- AutoOff slekkur sjálfkrafa í lokin
Og það tæknilega:
- Orkunýtni E - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
- Hljóð 49 dB(A)
- Hægt er að festa hurð með sleða, þannig að hún renni upp þegar vélin er opnuð og rekst þar af leiðandi ekki í sökkulinn
- Aqua-Control vatnslekavörn
- HxBxD: 81,8 - 89,8 x 59,6 x 55 cm (sjá teikningu fyrir nánari málsetningar)