BPE546360M AEG SenseCook 7000 ofn
Vandaður bakaraofn sem er sjálfshreinsandi og með kjöthitamælir, 3D hitadreifing, og flott stjórnborð auk fjölda aðra eiginleika gera þennan ofn af einum þeim fullkomnusta á markaðnum.
Það helsta:
- Pýrólískur sjálfhreinsibúnaður - veldu á milli þriggja sjálfhreinsikerfa þar sem ofninn læsist og brennir upp til agna alla fitu og óhreinindi við 500°C. Katalískur lykteyðir sem eyðir lykt við brennslu.
- Kjöthitamælir - stingdu mælinum í kjötið eða fiskinn og láttu ofninn sjá um restina. Hljóðmerki heyrist þegar maturinn er tilbúinn
- SoftMotion ljúflokun á hurð
- Útdraganlegar brautir
Og allt hitt:
- Frábær hitadreifing með 3D blæstri - jafnvel með margar plötur á sama tíma
- Rafeindaklukka með möguleika á framstillri ræsingu
- Rafeindastýrð hitastilling 30-300°C. Nákvæmari og minna hitaflökt
- IsoFront Top fjórglerjuð og niðurkæld hurð sem verður mest 44°C heit að utanverðu
- Snertitakkar - flott og auðskiljanlegt stjórnborð
- Blástursjálfvirkni - slekkur á blæstrinum þegar hurðin er opnuð
- FloodLight - halogenlýsing
- Barnalæsing á hurð og stjórnborði möguleg
Og það tæknilega:
- Orkuflokkur A+
- Rúmmál ofns 71 líter
- 1 ofnskúffa, 1 bökunarplötur og 1 grind fylgir
- 16 amper - 3500 W
- Litur stál (fáanlegur í öðrum litum)
- Utanmál H x B x D: 59,4 x 59,5 x 56,7 cm
- Innbyggimál H x B x D: 59 x 56 x 55 cm
IKE6441IB AEG Bridge spanhelluborð
AEG CombiZone spanhelluborð með vönduðum E.G.O. hellum og stjórnbúnaði. PowerBooster á öllum hellum.
Gerð, hönnun og tækni
- 58 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
- Niðurfræsanlegt
- E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur
Stærðir
- Utanmál H x B x D: 4,9 x 58 x 51 cm
- Innbyggingarmál B x D 56 x 49 cm
- Hellur stærðir:
- 2 x 21 cm 2300/3200W
- 18 cm 1800/2800W
- 14,5 cm 1400/2500W
- Heildarafl 7,35 kW
Eiginleikar
- Brúartenging - sameinaðu tvær hellur fyrir ennþá stærra eldunarsvæði. Hentar fyrir stærri potta og pönnur.
- DirectTouch stjórnbúnaður með 17 þrepum fyrir hverja hellu
- PowerBoost háhraðaspan á öllum hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
- Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
- EcoTimer tímaúr fyrir hverja hellu. Lækkar hitann hægt og rólega áður en tíminn klárast
- OptiHeat aðgerð með þremur forstilltum hitastigum til að halda suðu, halda heitu eða til að rétt velgja
- Stop&Go aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum erindum
- Hob2Hood – Stjórnaðu háfnum með helluborðinu. Möguleiki á þráðlausri tenginu beint í háfinn
Öryggi & þægindi
- Barnalæsing
- Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
- Sjálfvirk stærðarskynjun á pottum / pönnum
- Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
- Viðvörunarljós fyrir heita hellu
- Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast
Til fróðleiks og gagnleg ráð
- Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum