Nýtt

Samsung Bespoke Serie 9 AI Þvottavél

Lagerstaða: Sérpöntun

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

159.950 kr

 

Hygiene Gufukerfi
 

Með Hygiene Steam gufukerfinu getur þú náð úr erfiðum krumpum og frískað upp á fatnað með skápa lykt á stuttum tíma

Einnig getur gufukerfið hreinsað allt að 99.9% af öllum bakteríum sem gætu leynst í þvottinum. 

Betri hreinsun á örplasti

Vélin er útbúin kerfi sem minnkar líkur á örplasti (microplastic) um allt að 54% og safnast það fyrir í sérstakri síu í vélinni. 

Sjálfvirkur sjálfhreinsandi sápuskammtari
 

Láttu vélina sjá um að skammta þvottaefni og mýkingarefni. Með sjálfvirkum sápuskammtara færðu rétt magn af sápu í þvottinn og sparar í flestum tilfellum þvottaefni á sama tíma. Vélin skynjar hversu mikið vatn þvotturinn dregur í sig og ákvarðar magn þvottaefnis útfrá því. 

Einnig sér vélin um að þrífa sápuhólfið að utan svo það safnast síður sápa sem sullast framhjá utan á sápuhólfið. 

Drum Clean+

Með Drum Clean+ kerfinu tryggir vélin að hún sé alltaf hrein. Vélin sendir þér meldingu í gegnum Samsung SmartThings snjallforritið í símanum þínum þegar tími er kominn á hreinsun svo það gleymist ekki.

Regluleg hreinsun þýðir einfaldlega hreinni fatnaður, hreinni og endingarbetri þvottavél.

Fágað útlit
 

Hurðin á vélinni er með skyggðu styrktu gleri sem rispast ekki svo auðveldlega svo stílhreint útlitið helst fallegt lengur.

BubbleSoak

 

BubbleSoak™ er valkvætt forþvottakerfi og hentar fatnaði með erfiða bletti. Þvotturinn er lagður í bleyti í sápufroðu, sem fjarlægir blettina.

7" Snertiskjár af vönduðustu gerð
 

Lengi vel hafa Samsung verið þekktir fyrir vandaða síma og spjaldtölvur. Núna hefur þeim tekist að samtvinna tækni sína og fært þvottavélunum sínum einstaklega vandað stjórnborð með 7" LCD snertiskjá sem mun koma notendum á óvart.

Smart Energy 

Þessi þvottavél er einstaklega orkusparandi og er hún gefin upp fyrir að vera allt að 55% betri en hinn hefðbundni A orkuflokkur.

Fylgstu með orkunotkuninni í Samsung SmartThings snjallforritinu.

Það helsta: 

  • SmartThings – Tengdu vélina við WiFi. Þú getur stjórnað vélinni frá símanum þínum og stuðst við þvottaleiðbeiningar og rétt kerfaval. Fylgstu jafnframt með framvindu og tíma og með sinntu nauðsynlegu viðhaldi s.s. tromluhreinsun eða fáðu bilanagreiningu.
  • 9 kg hleðslugeta
  • 1400 snúninga stillanlegur vinduhraði 
  • Kolalaus Digital Inverter hágæðamótor - lengri ending, minna slit, hljóðlátari og hraðvirkari. 10 ára ábyrgð.
  • Sjálfvirkur Sápuskammtari /AutoDose - Láttu þvottavélina um að skammta þvottaefninu og fáðu réttara magn af sápu í þvottinn
  • VRT plus™ þvoðu hvenær sem er, með VRT tækni er vélin hljóðlátari og titrar minna 
  • AI Eco Bubble™ – Nýtt og betra kerfi sem notar gerfigreind til þess að sjá til að þvottaefnið leystist upp undir þrýstingi og breytist úr dufti í sápukvoðu sem blandast hraðar í þvottinn. Þvotturinn verður hreinni, jafnvel við mjög lágt hitastig.
  • BubbleSoak™ - valkvætt forþvottakerfi og hentar fatnaði með erfiða bletti. Þvotturinn er lagður í bleyti í sápufroðu, sem fjarlægir blettina
  • Hraðkerfi -  fyrir lítið magn og minna óhreint tau
  • Swirl+ tromla - lágmarkar slit og verndar viðkvæman fatnað
  • Drum Clean – 70°C tromluhreinsun sem heldur vélinni lyktalausri og fyrirbyggir sveppagróður og óhreinindi í þvottakari. Drepur 99,9% af bakteríum
  • Góð sérkerfi þ.á.m.ull, barnaföt og rúmföt
  • Hygienic Cleaning sótthreinsandi gufukerfi til að drepa bakteríur og ofnæmisvalda
  • AI Control - þvottavélin lærir á þig og aðlagast að þínum þörfum og aðlagar þvottatíma og vatnsnotkun að þörf og kemur í veg fyrir að fötin þín séu ofþvegin
  • AI Wash - fjórir skynjara mæla tauið, vatnið og óhreinindi í rauntíma og skammtar þvottaefni í takt við það i 5 skrefa ferli

 

Og allt hitt: 

  • ​​​LED skjár sem sýnir framvindu þvottakerfis
  • Framstillt ræsing möguleg 1-24 klukkustundir
  • XL 48 cm hurðarop
  • Barnalæsing á hurð og stjórnborði
  • Þvottakerfi: Eco 40-60, 15' Quick wash, Íþróttaföt, Barnaföt, Rúmföt, Cloudy Day, Bómull, Litað, Viðkvæmt, Gallaefni, Vinda/tæming, Drum Clean, Hygiene Gufa, Intense Kalt, Útiföt, Skol, Skyrtur, Hlóðlátt, Gerfiefni, Handkæði, Ull
  • Val um Intensive, forþvott,  Bubble Soak, Easy Iron
  • Mishleðsluskynjun - vélin fylgist grannt með þyngdarmisjöfnun í tromlunni og leitast við að jafna tauið út og lágmarka átök við þeytivindu
  • Öflug skoltækni sem byggir á skolun og stuttri vindu til skiptis
  • Keramíkhúðað hitaelement - betri ending og minni tæring
  • Stay Clean Drawer - sjálfhreinsandi skúffa fyrir þvottaefni

 

Og það tæknilega: 

  • Hljóð 72 dB(A) í þeytivindu
  • Orkunýtni A - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
  • Þvottahæfni A
  • Vinda B
  • H x B x D: 85 x 60 x 63 cm

 

 

Vörunúmer: WF90F09C4SU3-26 Flokkur: Þvottahús, Venjulegar,