B-VARA. B-Vara er tæki sem hefur verið tekið til baka og getur verið útlitsgallað eða lítið notað. Tækið er yfirfarið og prófað og með fullri ábyrgð. Fáðu nánari upplýsingar hjá sölumanni.
Ástæða: Skilað og sagt gallað, prófað og í lagi, sennilega vitlaust tengt. Ekkert finnst að borðinu
Spansuðuhelluborð með 4 kraftmiklum PowerBoost hellum. Fallegur aflíðandi glerkantur.
Gerð, hönnun og tækni
- 60 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
- Rautt LED stjórnborð
Stærðir
- Utanmál H x B x D: 6 x 59 x 52 cm
- Innbyggingarmál B x D 56 x 49 cm
- Hellur stærðir:
- 1 x 21 cm 2300/3700W PowerBoost
- 2 x 18 cm 1800/2800W PowerBoost
- 1 x 14,5 cm 1400/2500W PowerBoost
- Heildarafl 7,35 kW
Eiginleikar
- Snertitakkar á öllum hellum og stafrænt stjórnborð með LED skjá
- PowerBoost háhraðaspan á öllum hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
- Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stunnd
- Mínútuúr 0-99 mínútur
Öryggi & þægindi
- Barnalæsing
- Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
- Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
- Viðvörunarljós fyrir heita hellu
- Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast
Til fróðleiks og gagnleg ráð
- Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum




