B-VARA. B-Vara er tæki sem hefur verið tekið til baka og getur verið útlitsgallað eða lítið notað. Tækið er yfirfarið og prófað og með fullri ábyrgð. Fáðu nánari upplýsingar hjá sölumanni.
Ástæða: Rangt afhent af lager, vél ónotuð og er enn í upprunalegum umbúðum
Xiaomi kynnir Roborock S7 Max Ultra - Sonic Mopping ryksugu- og skúringarvélmennið með sjálfvirkri stöð
Færðu þrifnaðinn upp á hærra plan með Sonic Mopping
Roborock S7MAX er hlaðinn nýjustu tækni.
ReactiveAI 2.0
Sjálfvirk hleðslu- & tæminga
Sonic Mopping - 3.000 skrúbb á mínútu
Sjálfvirk moppu lifta
Fljótandi bursti
100% gúmmí bursti
5100Pa² HyperForce™ sogkraftur
Ultrasonic teppa skynjari
App og radd stýring
Háþróaðar tímaáætlanir
Nákvæm LiDAR leiðsögn
No-Go bannsvæði
470 ml rykhólf
5200 mAh rafhlaða - endist í allt að 3 tíma
300 ml vatnstankur - skúrar allt að 200 m²
E11 sía
Skúraðu á hraða hljóðsins
Segðu bless við blautar moppur. Roborock S7 notast við hljóð púlsa til þess að skrúbba gólfllötinn allt að 3.000 sinnum á mínútu. Fer t.d. létt með kaffi bletti og drullug skóspór. 300 ml vatnstankurinn gerir henni kleift að skúra lengur og betur.
Gervigreind bregst við
ReactiveAI2 kann að þekkja mismunandi hluti sem finnast á gólfinu heima hjá þér og passar sig að festast ekki. Hvort sem það eru skór, sokkar, rafmagnssnúrur eða matarleyfar. Ryksugan veit hvernig er best að bregðast við hverjum hlut.
Tilbúin að rísa upp
Sjálfvirka moppu liftan liftir upp moppunni þegar hún skynjar teppi. Þannig getur þú ryksugað og skúrað á sama tíma þó rýmið sé t.d. bæði parket- og teppalagt.
Betri fljótandi bursti
Svo að allt virki sem best þarf burstinn að halda sér nálægt gólfinu. Fljótandi burstinn heldur sig við gólfið þrátt fyrir ójöfnur og skilar þannig mun betri árangri.Full sjálfvirk tæmingarstö
Gúmmi bursti
Gúmmí burstinn endist lengur, ryksugar betur og er auðveldari að hreinsa
HyperForce™
Með 5100Pa² HyperForce™ sogi, ryksugar Roborock S7 upp morgurnkorn og fínustu rykagnir af parketi, föst hár úr teppum og sand úr mottum
Ultrasonic teppa skynjari
Með hljóð skynjurum veit Roborock S7 hvar teppin og motturnar eru og getur lift upp moppunni til að ryksuga þær. Einnig er hægt að velja að skúra eingöngu parketið eða ryksuga eingöngu teppin og motturnar
App og Raddstýring
Allar stillingar eru aðgengilegar í appinu þar að auki er hægt að nota Google home eða Alexa til að ræsa Roborock S7
Háþróaðar tímaáætlanir
Sjálfvirkar tímaáætlanir gefa þær færi á að setja upp fullkomna hreinsiáætlun fyrir þitt heimili. Láttu moppa eldhúsið efitr morgun- og kvöldmatinn. Ryksuga stofuna þrisvar sinnum í viku eða bara eins og þér hentar best
Nákvæm LiDAR leiðsögn
Roborock S7 notast við LiDAR ljós og laser skynjara til að læra á þitt heimili og búa til nákvæm kort af herbergjum og öðrum rýmum. Virkar á allt að fjórum hæðum.
No-Go svæði
Settu upp No-Go bannsvæði og ósýnilega veggi til að verja viðkvæm húsgögn og aðri muni
Fylgstu með
Fylgstu með í appinu og sjáðu hvernig Roborock S7 gengur að skúra og ryksuga. Jafnvel þegar þú ert ekki heima