Stílhreinn skápur frá AEG með MultiFlow kæliviftu og sjálfvirkri afhrímingu (no-frost). Rakajöfnuð grænmetisskúffa gefur allt að 20% meiri raka og ýtir þar af leiðandi undir betri endingu á matvælum. Að auki er niðurkæld skúffa sem er tilvalin fyrir betri endingu á öðru ferskmeti.
Almennt
- Stafrænt stjórnborð með snertitökkum og baklýstum LED stöfum
- TwinTech aðskilin kælikerfi fyrir kæli- og frystihluta sem minnkar lyktar- og hitasmit á milli svæða.
- Aðskilin kerfi - hægt er að stilla hitastig fyrir kæli- og frysti sérstaklega
- Aðvörunarhljóð ef hurðir eru skildar eftir opnar
- Litur: Hvítur
- Inngreypt handföng
- Sérstaklega hljóðlátur - Hljóð aðeins 37 dB(A)
- Hægt að víxla hurðum
- HxBxD: 186 x 59,5 x 65 cm
- Orkuflokkur D - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
Kælihluti
- Rúmmál 230 lítrar (nettó)
- Rakajöfnuð grænmetisskúffa, gefur allt að 20% meiri raka
- Björt sparneytin LED lýsing í miðjum skápnum
- MultiFlow kælivifta tryggir jafnt kuldaflæði í öllum skápnum. Matvæli geymast lengur og við bestu mögulegu skilyrði.
- ExtraChill kæliskúffa - geymdu kjötið og fiskinn við kaldara hitastig en restin af skápnum fyrir meiri ferskleika og betri endingu á ferskri matvöru
- Power Cool hraðkæling
- Sjálfvirk afhríming
Frystihluti
- Rúmmál 101 lítrar (nettó)
- NoFrost tækni - Búnaður sem eyðir raka og kemur í veg fyrir hrímmyndun og klaka. Maturinn helst ferskari, geymist lengur og þú sleppur við að afhríma skápinn
- 3 frystiskúffur með betri nýtingu á rými
- SuperFreeze hraðfrysting
- Frystigeta 8 kg á sólarhring






