Liebherr Peak BioFresh Kæliskápur

Lagerstaða: Sérpöntun

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

619.950 kr

Liebherr Peak BioFresh kæliskápur með HydroBreeze rakastýringu í skúffum. Skápurinn er einstaklega hljóðlátur, aðeins 29db.

BioFresh Professional
 

BioFresh Professional skúffukerfið gefur matvælum aukin ferskleika og geymsluþol. Í bland við rétt hitastig og rakastig færð þú bestu endingu sem kostur er á 

 

 

BioFresh með HydroBreeze

Viltu kæla ávexti og grænmeti eins og atvinnu kokkur? Þú munt fá afköstin með HydroBreeze. Kaldur úði blandað við loft rétt yfir 0°C gefur matnum aukinn kraft fyrir lengra geymsluþol. HydroBreeze virkjast á 90 mínútna fresti í 4 sekúndur og í 8 sekúndur þegar hurðin er opin. 

Grænmetis og ávaxtageymsla af bestu gerð

Stökkt salat og jarðaber - vinsælustu matvörurnar eiga það besta skilið. Með Biofresh skúffunum nærðu að auka endingu á matvælum, þá sér í lagi þessum viðkvæmustu um töluverðan tíma þökk sé rakastýringu og réttu hitastigi hverju sinni. 

Elskar þú fisk ? 

Elskar þú fisk? Biofresh Professional skúffurnar halda fiskinum ferskum! Skúffurnar geyma fisk og sjávarfang við kjörhitastigið -2°C, rétt eins og í fiskbúðinni. Stilltu stærð kalda væðisins eins og þú vilt og geymdu afganginn af kjötinu, mjólkurvörum og öðru við kjörhitastig. LED-skjár gefur til kynna að -2°C svæðið sé virkt.

Smart Device 

Stjórnaðu og fylgstu með skápnum með Liebherr smáforritinu í símanum þínum. Stýrðu hitastiginu og fáðu meldingu ef örar hitabreytingar eiga sér stað. 

Ambient Ljós 
 

Ambient lýsingin gefur ísskápnum þínum sérstakan blæ. Lýsingin skapar einstaka birtu á innréttingunni og eykur andrúmsloftið í heild sinni.

 

Almennt

  • Orkuflokkur D
  • Stafrænt stjórnborð með skjá
  • Aðvörunarhljóð og ljós ef hurðir eru skildar eftir opnar
  • Hljóð 29 dB(A)
  • Hægt að víxla hurðum
  • HxBxD:177,2 - 178,8 x 56 - 57 x 55 cm

Kælihluti

  • Rúmmál 296  lítrar (nettó) 
  • BioFresh Professional- þrjár neðstu skúffurnar eru BioFresh skúffur. Hitastigið í þeim er haldið nær frostmarki og eru þær sérstaklega hentugar til þess að geyma ávexti, grænmeti, kjöt-, fisk- og mjölkurvörur. Vítamín og ferskleiki varðveitast lengur.
  • HydroBreeze - skápurinn blæs raka ofan í skúffurnar fyrir hámarks afköst í geymslugetu skápsins
  • Ambient LED lýsing - kælirýmið er vel upplýst bæði frá baki og hliðum
  • PowerCooling kælivifta tryggir jafnt kuldaflæði í öllum skápnum. Matvæli geymast lengur og við bestu mögulegu skilyrði. Viftan slekkur á ser þegar hurðin er opnuð og sparar rafmagn.
  • SuperCool hraðkæling - náðu kuldanum niður í kjörhita eftir að skápurinn er opnaður eða fylltur af nýjum matvælum.
  • SoftTelescopic hillur - útdraganlegar með auðveldu aðgengi
  • Eggjabakki - handhægur bakki sem hægt er að taka út úr kælinum
  • FreshAir - kolasía eyðir lykt og viðheldur ferskleika
  • Rakastýring - stjórnaðu rakanum í BioFresh skúffunum. DrySafe fyrir kjöt-, fisk- og mjólkurvörur. HydroSafe fyrir ávexti og grænmeti. 
  • Sjálfvirk afhríming
  • Hitastig í almennurými +3°C - +9°C
  • Bækling er hægt að nálgast hér

 

Um Liebherr

Liebherr er ekki aðeins einn stærsti framleiðandi í heiminum á ýmis konar á iðnaðartækjum s.s. byggingakröngum og beltagröfum heldur einnig leiðandi á öðrum hátæknisviðum með yfir 42.000 starfsmenn sem starfa í 130 fyrirtækjum víðsvegar um heiminn og samanlagða veltu uppá 9 milljarða evra. Kæliskáparnir frá Liebherr hafa verið framleiddir í yfir 60 ár framleiddir eftir ströngustu gæðakröfum í Ochenhausen í Þýskalandi og raðað til sín verðlaunum fyrir gæði, hönnun og endingu. Liebherr framleiðir flestöll kælitæki fyrir Miele.

 

 

 

Vörunúmer: IRBdi5170 Flokkur: Kæli- & frystitæki, Innbyggðir,