Liebherr Peak BioFresh kæliskápur

Lagerstaða: Sérpöntun

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

899.950 kr

Liebherr Peak BioFresh kæliskápur með HydroBreeze rakastýringu í skúffum. Skápurinn er einstaklega hljóðlátur, aðeins 32db.

BioFresh Professional
 

BioFresh Professional skúffukerfið gefur matvælum aukin ferskleika og geymsluþol. Í bland við rétt hitastig og rakastig færð þú bestu endingu sem kostur er á 

 

 

BioFresh með HydroBreeze

Viltu kæla ávexti og grænmeti eins og atvinnu kokkur? Þú munt fá afköstin með HydroBreeze. Kaldur úði blandað við loft rétt yfir 0°C gefur matnum aukinn kraft fyrir lengra geymsluþol. HydroBreeze virkjast á 90 mínútna fresti í 4 sekúndur og í 8 sekúndur þegar hurðin er opin. 

Grænmetis og ávaxtageymsla af bestu gerð

Stökkt salat og jarðaber - vinsælustu matvörurnar eiga það besta skilið. Með Biofresh skúffunum nærðu að auka endingu á matvælum, þá sér í lagi þessum viðkvæmustu um töluverðan tíma þökk sé rakastýringu og réttu hitastigi hverju sinni. 

InfinitySpring vatnsvél 

Beintengd vatnsvél innfelld í innri vegg kæliskápsins fyrir stílhreint og falið útlit. 

AutoDoor

Fullar hendur? Engar áhyggjur! Eina sem þarf er létt bank eða raddskipun og skápurinn opnar sig sjálfur. Hægt er að stilla opnunargráðu og tímalengd eftir þörfum. Sjálfvirk lokun sér svo til þess að skápurinn gleymist ekki opinn. 

Ambient Ljós 
 

Ambient lýsingin gefur ísskápnum þínum sérstakan blæ. Lýsingin skapar einstaka birtu á innréttingunni og eykur andrúmsloftið í heild sinni.

 

Almennt

  • Orkuflokkur C
  • Stafrænt stjórnborð með skjá
  • Aðvörunarhljóð og ljós ef hurðir eru skildar eftir opnar
  • Hljóð 32 dB(A)
  • Hægt að víxla hurðum
  • HxBxD: 177,2 - 179,3 x 56 - 57 x 55 cm

Kælihluti

  • Rúmmál 296  lítrar (nettó) 
  • BioFresh Professional- þrjár neðstu skúffurnar eru BioFresh skúffur. Hitastigið í þeim er haldið nær frostmarki og eru þær sérstaklega hentugar til þess að geyma ávexti, grænmeti, kjöt-, fisk- og mjölkurvörur. Vítamín og ferskleiki varðveitast lengur.
  • HydroBreeze - skápurinn blæs raka ofan í skúffurnar fyrir hámarks afköst í geymslugetu skápsins
  • Ambient LED lýsing - kælirýmið er vel upplýst bæði frá baki og hliðum
  • PowerCooling kælivifta tryggir jafnt kuldaflæði í öllum skápnum. Matvæli geymast lengur og við bestu mögulegu skilyrði. Viftan slekkur á ser þegar hurðin er opnuð og sparar rafmagn.
  • SuperCool hraðkæling - náðu kuldanum niður í kjörhita eftir að skápurinn er opnaður eða fylltur af nýjum matvælum.
  • SoftTelescopic hillur - útdraganlegar með auðveldu aðgengi
  • Eggjabakki - handhægur bakki sem hægt er að taka út úr kælinum
  • FreshAir - kolasía eyðir lykt og viðheldur ferskleika
  • Rakastýring - stjórnaðu rakanum í BioFresh skúffunum. DrySafe fyrir kjöt-, fisk- og mjólkurvörur. HydroSafe fyrir ávexti og grænmeti. 
  • Sjálfvirk afhríming
  • Hitastig í almennurými +3°C - +9°C

 

Um Liebherr

Liebherr er ekki aðeins einn stærsti framleiðandi í heiminum á ýmis konar á iðnaðartækjum s.s. byggingakröngum og beltagröfum heldur einnig leiðandi á öðrum hátæknisviðum með yfir 42.000 starfsmenn sem starfa í 130 fyrirtækjum víðsvegar um heiminn og samanlagða veltu uppá 9 milljarða evra. Kæliskáparnir frá Liebherr hafa verið framleiddir í yfir 60 ár framleiddir eftir ströngustu gæðakröfum í Ochenhausen í Þýskalandi og raðað til sín verðlaunum fyrir gæði, hönnun og endingu. Liebherr framleiðir flestöll kælitæki fyrir Miele.

 

 

 

Vörunúmer: IRBAc5190-617 Flokkur: Kæli- & frystitæki, KÆLISKÁPAR, Innbyggðir,