Siemens IQ700 spanhelluborð

Lagerstaða: Uppselt

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

319.950 kr

Fáðu tölvupóst þegar varan er komin aftur á lager

StudioLine IQ700 topplína frá Siemens með tækni morgundagsins og áður óþekktum þægindum. FlexMotion spantækni sem býður upp á fullkominn sveigjanleika fyrir allar stærðir af pottum og pönnum. FryingSensor tækni hárrétta og áhyggjulausa steikingu og með HomeConnect Appinu er hægt að tengjast borðinu með þráðlausu neti. 

Hafðu fulla stjórn á hitanum
 

FryingSensor Plus gerir það auðveldara en nokkru sinni fyrr að tryggja að hver einasta panna nýtist fullkomlega og tilbúin fyrir eftirvæntingarfulla bragðlauka. Þessi snjalla aðgerð segir þér hvenær pannan þín hefur náð réttu hitastigi og þá heldur hún þessu hitastigi sjálfkrafa meðan þú eldar. 

Einstakt blátt notendaviðmót

Ertu að leita að helluborði með glæsilegu og þæginlegu stjórnborði? Upplifðu þetta einstaka bláa notendaviðmót og stjórnaðu öllum eldunarsvæðum og stillingum með því að snerta og renna með fingrinum. Með snjalla bláa dualLight Slidernum getur þú auðveldlega valið eldunarsvæði sitt hvoru megin við helluborðið. Þegar kveikt er á borðinu er það sjónrænt hápunktur - þegar það er óvirkt er það algjörlega ósýnilegt.

Home Connect - stýrðu helluborðinu hvar sem er 
 

Njóttu fullrar stjórnunar á helluborðinu þínu.
Viltu opna alla möguleika helluborðsins? Tengdu einfaldlega boðrið við Home Connect appið  til að stjórna því hvar sem er  – líka með raddstýringu Amazon Alexa eða Google Assist.  – án þess að vera í eldhúsinu.

Gerð, hönnun og tækni

  • 79,2 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
  • Blátt LED stjórnborð sýnilegt þegar kveikt er á borðinu
  • Svört grafík - dempuð grafík gerir borðið mun fallegra ásjónar
  • Með jafnháum glerkanti allan hringinn - hentar til niðurfræsingar í borðplötu
  • E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur 

Stærðir

  • Utanmál H x B x D: 5,6 x 79,2 x 51,2 cm
  • Innbyggingarmál B x D 78 x 50 cm 
  • FlexInductionPlus hellur - 10 x 3700W PowerBoost hellur
  • Heildarafl 7,4 kW

Eiginleikar

  • DualLight Slider - stjórnbúnaður með 17 þrepa sleðasnertingu fyrir hverja hellu
  • PowerBoost háhraðaspan á öllum hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
  • PowerMovePlus - fjögura svæða spanhellur með mismunandi hitavali sem virkjast við snertingu
  • Frying Sensor - heldur hitanum jöfnum  óháð tímalengd án þess að neitt brenni fast 
  • Samtengjanlegar hellur - sameinar eins margar hellur og þarf fyrir pottinn eða pönnunan þína
  • Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
  • ReStart aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum 
  • Potta- og stærðarskynjari
  • Tímastillirinn með niðurtalningu geturðu stillt allt að 99 mínútur fram í tímann. Þegar innstilltum tíma er lokið, heyrist hljóðmerki.
  •  ReStart og QuickStart aðgerð
  • HomeConnect - stjórnaðu og helluborðinu úr símanum með Siemens HomeConnect appinu. 

Öryggi & þægindi

  • Barnalæsing
  • Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
  • Sjálfvirk stærðarskynjun á pottum / pönnum
  • Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
  • Viðvörunarljós fyrir heita hellu
  • Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast

Til fróðleiks og gagnleg ráð

  • Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum
Vörunúmer: EX807NYV6E Flokkur: Eldunartæki, Spansuðuhelluborð,