Tilboð
-16%

Electrolux Skaftryksuga

Lagerstaða: Til á lager

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

27.777 kr 32.950 kr

Þessi fjölhæfa ryksuga hentar vel í öll léttari heimilisþrif, hvort sem það sé létt rennsli eftir matartíman eða þá í bílinn.

Það helsta:
  • 2 í 1 handryksuga og skaftryksuga - þægileg og fljótleg þrif fyrir allt heimilið
  • TurboPower 18V Lithium rafhlaða kraftmeiri rafhlaða sem endist helmingi lengur en fyrri rafhlöður og er tvöfalt fljótari að endurhlaðast
  • Frístandandi möguleiki - getur lagt hana frá þér hvar sem er og látið standa án stuðnings  

Og allt hitt: 

  • Þráðlaus og hlaðanleg með hleðslustandi sem fylgir
  • Enginn poki - allt sem þarf er að tæma ryktankinn sem rúmar um 300 ml
  • Þvoanleg HEBA sía - engin skipti nauðsynleg. Einfalt og auðvelt að tæma og þrífa
  • 180° EasySteer sveigjanlegur ryksuguhaus sem auðvelt er að stýra í allar áttir
  • Auðlosanlegur bursti - á einfaldan hátt má losa burstann til að þrífa hann
  • 3 burstar og mjótt, langt sogstykki fylgja
  • Hentar á öll gólf
  • Hljóðlát

Og það tæknilega: 

  • Hleðslutími á tóma rafhlöðu 4 klst
  • Ending allt að 45 mínútur
  • 18 volt

Grab & Go
 

Rennur þæginlega í og úr hleðslustöðinni, gríptu bara í skaftið og byrjaðu.

Enginn tapaður kraftur
 

Njóttu þess að vera með fullann kraft, hvort sem rafhlaðan er að tæmast eða rykhólfið að fyllast.

Hljóðlátari hreinsun
 

Handryksugan er hönnuð til að lágmarka hljóð en hámarka kraft.

Burstahreinsir

 

Hreinsaðu burstann með einfaldri, innbyggðri aðgerð.

Vörunúmer: ES52CB18UG-26 Flokkur: RYKSUGUR, Skaftryksugur,