Electrolux spanhelluborð með vönduðum E.G.O. hellum og stjórnbúnaði. PowerBooster á öllum hellum. Með aflíðandi glerkanti að framan.

Gerð, hönnun og tækni
- 59 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
- Með aflíðandi glerkanti að framan
- E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur
Stærðir
- Utanmál H x B x D: 4,4 x 59 x 52 cm
- Innbyggingarmál B x D 56 x 49 cm
- Hellur stærðir:
- 4 x 21 cm 2300/3200W
- Heildarafl 7,35 kW
Eiginleikar
- Brúartenging - sameinaðu tvær hellur fyrir ennþá stærra eldunarsvæði. Hentar fyrir stærri potta og pönnur.
- DirectTouch stjórnbúnaður með 14 þrepum fyrir hverja hellu + Booster/háhraðastilling
- PowerBoost háhraðaspan á öllum hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
- Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
- EcoTimer tímaúr fyrir hverja hellu. Lækkar hitann hægt og rólega áður en tíminn klárast
- Stop&Go aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum erindum
Öryggi & þægindi
- Barnalæsing
- Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
- Sjálfvirk stærðarskynjun á pottum / pönnum
- Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
- Viðvörunarljós fyrir heita hellu
- Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast
Til fróðleiks og gagnleg ráð
- Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum