Fullkominn sveigjanleiki og aukin þægindi voru í brennidrepli við þróun á nýjustu kynslóð af Ergorapido ryksugunni. Mótor og viftublöð hafa verið endurhönnuð sem skila allt að 20% meiri sogkrafti ásamt lengri rafhlöðuendingu. Ný endurbætt útblásturshönnun, kemur jafnframt í veg fyrir að síurnar mettast og tryggir óhindrað loftflæði.
Það helsta:
- 2 í 1 handryksuga og skaftryksuga - þægileg og fljótleg þrif fyrir allt heimilið
- TurboPower 14,4V Lithium rafhlaða kraftmeiri rafhlaða sem endist helmingi lengur en fyrri rafhlöður og er tvöfalt fljótari að endurhlaðast
- Frístandandi möguleiki - getur lagt hana frá þér hvar sem er og látið standa án stuðnings
Og allt hitt:
- Þráðlaus og hlaðanleg með hleðslustandi sem fylgir
- Enginn poki - allt sem þarf er að tæma ryktankinn sem rúmar um 500 ml
- Þvoanleg ryksía - engin skipti nauðsynleg. Einfalt og auðvelt að tæma og þrífa
- 180° EasySteer sveigjanlegur ryksuguhaus sem auðvelt er að stýra í allar áttir
- Auðlosanlegur bursti - á einfaldan hátt má losa burstann til að þrífa hann
- Hentar á öll gólf
- Hljóðlát
Og það tæknilega:
- Hleðslutími á tóma rafhlöðu 3 klst
- 30 mín notkun á lægstu hraðastillingu
- 10 mín notkun á hæstu hraðastillingu