LR612E84O-26 AEG ProSense þvottavél
AEG ProSense þvottavél með hljóðlátum og endingargóðum kolalalausum mótor. Sérstök ProTex tromla sem fer mjúklega með þvottin og slítur honum síður. Hentar meðalstórum og stórum fjölskyldum sem vilja vandaða þvottavél frá traustu merki.
Það helsta:
- 8 kg hleðslugeta
- 1400 snúninga stillanlegur vinduhraði
- Kolalaus Silence hágæðamótor - lengri ending, minna slit, hljóðlátari og hraðvirkari
- Eco+ Time Save hraðval - þú getur stytt algengustu kerfi um allt að helming
- ProTex tromla - lágmarkar slit og verndar viðkvæman fatnað
- ProSense tækni - aðlagar þvottatíma og vatnsnotkun að þörf og kemur í veg fyrir að fötin þín séu ofþvegin
- 20 mínútna hraðkerfi
- Góð sérkerfi þ.á.m. ull & silki, sængur & teppi, strau-létt
Og allt hitt:
- LED skjár sem sýnir framvindu þvottakerfis
- Framstillt ræsing möguleg 1-20 klukkustundir
- Active Balance Control mishleðsluskynjun
- XL 32 cm hurðarop með allt að 160° opnun
- WoolMark+ ullarvottun
- Barnalæsing á hurð og stjórnborði
- Sápuskúffa fyrir fljótandi þvottaefni eða duft
- Þvottakerfi: bómull, bómull eco, gerfiefni, viðkvæmur þvottur, 20 mínútna hraðkerfi, teppi/sængur, ull/handþvottur, bómull 20°, strau-létt, skolun, dæling/vinda
- Sérstakt blettakerfi og hólf í sápuskúffu fyrir blettahreinsi
- Val um forþvott, skolstöðvun eða viðbótarskolun
- Mishleðsluskynjun - vélin fylgist grannt með þyngdarmisjöfnun í tromlunni og leitast við að jafna tauið út og lágmarka átök við þeytivindu
- Öflug skoltækni sem byggir á skolun og stuttri vindu til skiptis
Og það tæknilega:
- Hljóð aðeins 50 dB(A) í þvotti og 74 dB(A) í þeytivindu
- Tromlustærð 53 lítrar
- Orkunýtni A
- Þvottahæfni A
- Vinda B
- H x B x D: 85 x 59,5 x 58 cm
T6DBM720G-26 AEG ProSense þurrkari
Með þessum barkalaus þéttiþurrkara frá AEG, þurrkar á nærgætinn hátt með sem minnstum slitmerkjum á fatnaði og taui, þökk sé ProSense tækninni.
Það helsta:
- 7 kg hleðslugeta
- Barkalaus - raka er safnað saman í tank eða dælt út með frárennslisslöngu
- Rakaskynjari - þú velur þurrkstigið allt frá strauþurru til extra þurrt og þurrkarinn stoppar þegar þvotturinn er orðinn þurr
- Góð sérkerfi þ.á.m. sængur, sængurföt, gallabuxnakerfi og íþróttafatnaður
Og allt hitt:
- LED skjár sem sýnir eftirstöðvar tíma
- Hljóðmerki - ef þú vilt lætur þurrkarinn þig vita með hljóðmerki þegar þurrki lýkur
- XXL hurðarop með allt að 160° opnun - hægt að víxla opnun með aðstoð fagmanns
- Snýst til beggja átta - losar um þvottinn og minnkar krumpur
- Öflug krumpuvörn með niðurkælingu á taui og snýr þvottinum reglulega eftir að kerfi lýkur
- Framstillt ræsing möguleg 1-20 klukkustundir
- Barnalæsing á stjórnborði möguleg
- Hægt að veljum að tæma vatnstank eða tengja frárennslisslöngu fyrir affallsvatn
- Þurrkkerfi: bómull, bómull eco, gerfiefni, viðkvæmur þvottur, strauléttur fatnaður, uppfrískun, skyrtukerfi, sængur/teppi, sængurfatnaður, íþróttafatnaður, gallaefni og blandaður þvottur
Og það tæknilega:
- Hljóð 66 dB(A)
- Tromlustærð 104 lítrar
- Orkunotkun 504 kW á ári
- H x B x D: 85 x 59,6 x 57 ,1 cm (full dýpt 59,5 cm)