Toppmódel frá Eico í Danmörku. Óviðjafnanleg tækni, þægindi og smekkleg hönnun.
Gerð, hönnun og tækni
- 70 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
- TotalBlack án grafík og undirlakkað í svörtu svo að ljós nái ekki í gegn
- Hvítt LED stjórnborð sýnilegt þegar kveikt er á borðinu
- Glerkantur allan hringinn með niðurslípuðum kanti að framanverðu
- E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur
Stærðir
- Utanmál H x B x D: 2,7 x 70 x 52 cm
- Innbyggingarmál B x D 66 x 49 cm
- Stærðir hellna
- 4 x 22x18 cm 2100W / 3700W með Power Boost
- Heildarafl 7,4 kW
Eiginleikar
- SliderTouch stjórnbúnaður með 10 þrepum fyrir hverja hellu
- PowerBoost háhraðaspan á öllum hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
- Intelligent Induction tækni - spanhellurnar nema hvort og hvar pottur/panna er á borðinu og stjórnborðið kveikir sjálfkrafa á stjórnbúnaði fyrir viðkomandi hellu
- Samtengjanlegar hellur - sameinar tvær eða fjórar hellur fyrir stóra potta
- Stop&Go aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum erindum
- Keep Warm aðgerð með forstilltu hitastigi 42°C, 70°C eða 94°C. 42°C er til dæmis tilvalið til að bræða súkkulaði og 70°C hentar til að halda mat heitum. 94°C til að fá fullkomna suðu á spagetti, hrísgrjónum og kartöflum
- Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
- Mínútuúr 0-99 mínútur fyrir hverja hellu
Öryggi & þægindi
- Barnalæsing
- Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
- Sjálfvirk stærðarskynjun á pottum / pönnum
- Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
- Viðvörunarljós fyrir heita hellu
- Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast
Til fróðleiks og gagnleg ráð
- Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum
- Þetta helluborð er einnig fáanlegt til niðurfræsingar (70-IQWP)
- Þetta helluborð er einnig fáanlegt 80 cm (80-IQWF / 80-IQWP)
- Þetta helluborð er einnig fáanlegt 60 cm (60-IQWF / 60-IQWP)
- Leiðbeiningar á ensku og dönsku má nálgast hér
- Rafmagnskapall fylgir ekki