Electrolux SenseBoil 700 spanhelluborð. Þetta borð er með möttu gleri og er rispufrítt. Vandaðar E.G.O. hellur og stjórnbúnaður. PowerBooster á öllum hellum. Þetta borð hentar til niðurfræsingar í t.d. steinplötur.
Gerð, hönnun og tækni
- 77 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
 - Matt rispufrítt gler sem einstaklega auðvelt er að þrífa
 - Niðurfræsanlegt
 - E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur
 
Stærðir
- Utanmál H x B x D: 4,9 x 77 x 51 cm
 - Innbyggingarmál B x D 75 x 49 cm
 - Hellur stærðir:
	
- 2 x 21 cm 2300/3200W (samtengjanlegar)
 - 24 cm 2300/3600W
 - 14,5 cm 1400/2500W
 
 - Heildarafl 7,35 kW
 
Eiginleikar
- Brúartenging - sameinaðu tvær hellur fyrir ennþá stærra eldunarsvæði. Hentar fyrir stærri potta og pönnur.
 - SenseBoil - Borðið skynjar þegar suðan er komin upp og lækkar sjálfkrafa til þess að það sjóði ekki upp úr.
 - DirectTouch stjórnbúnaður með 17 þrepum fyrir hverja hellu
 - PowerBoost háhraðaspan á öllum hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
 - Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
 - EcoTimer tímaúr fyrir hverja hellu. Lækkar hitann hægt og rólega áður en tíminn klárast
 - OptiHeat aðgerð með þremur forstilltum hitastigum til að halda suðu, halda heitu eða til að rétt velgja
 - Stop&Go aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum erindum
 - Hob2Hood – Stjórnaðu háfnum með helluborðinu. Möguleiki á þráðlausri tenginu beint í háfinn
 
Öryggi & þægindi
- Barnalæsing
 - Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
 - Matt rispufrítt gler sem einstaklega auðvelt er að þrífa
 - Sjálfvirk stærðarskynjun á pottum / pönnum
 - Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
 - Viðvörunarljós fyrir heita hellu
 - Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast
 
Til fróðleiks og gagnleg ráð
- Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum
 
                            
                                
                                
                                
                                
                                
                                




