Hánákvæm og stílhrein snjallvog frá Withings, leiðanda framleiðanda í snjallvogum og líkamsgreiningar lausnum frá Frakklandi.
Wi-Fi tenging við síma
Stöðug tenging sem les og greinir jafnóðum hvort sem síminn er nálægt eða ekki. Hægt er að vista mælingar og fylgjast með þróun þeirra á einfaldan og þægilegan máta.
Mældu hvar sem er
Sérstakir teppafætur gera þér kleift að mæla sama á hvaða gólfi svo lengi sem það er stöðugt.
Veðurspáin fylgir
Hægt er að sjá veðurspá fyrir daginn beint á skjánum ef búið er að setja upp vogina með staðsetningu. Að auki aðlagar vogin sig að þyngdaraflsstuðli á hverjum stað fyrir ennþá nákvæmari mælingar.
Rafhlöðuknúin
4x AAA-rafhlöður skila af sér endingu upp í allt að 18 mánuði af reglulegri notkun.
- Mælir
- Þyngd
- Þyngdarbreytingu yfirtímabil
- BMI-stuðul
- Tengjanlegt við WiFi og Withings snjallforritið sem og yfir 100 önnur snjallforrit til að mæla og fylgjast með heilsufari
- Sérstakur óléttuhamur
- Rafhlöðuending allt að 18 mánuðir
- 4x AAA rafhlöður fylgja
- Litur: Svört

WITHINGS FRAKKLAND
WITHINGS var stofnað í Frakklandi árið 2008 og hefur framleitt snjallvogir í hæsta gæðaklassa frá 2009. Margverðlaunaðir og rómaðir fyrir langa og stöðuga endingu. Að auki framleiðir WITHINGS hágæða snjallúr og hefur hlotið viðurkenningu fyrir nákvæmar og góðar mælingar. WITHINGS er stoltur styrktaraðili franska landsliðsins í körfubolta sem formlegur birgi á snjallvogum.


