AEG SaphirMatt® SenseBoil 7000 helluborð

Lagerstaða: Til á lager

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

169.950 kr

AEG SenseBoil 7000 spanhelluborð. Þetta borð er með möttu gleri og er rispufrítt. Vandaðar E.G.O. hellur og stjórnbúnaður. PowerBooster á öllum hellum. Þetta borð hentar til niðurfræsingar í t.d. steinplötur.

 

Gerð, hönnun og tækni

  • 58 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
  • Matt rispufrítt gler sem einstaklega auðvelt er að þrífa
  • Niðurfræsanlegt
  • E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur 

Stærðir

  • Utanmál H x B x D: 4,9 x 58 x 51 cm
  • Innbyggingarmál B x D 56 x 49 cm 
  • Hellur stærðir:
    • 2 x 21 cm 2300/3200W
    • 18 cm 1800/2800W
    • 14,5 cm 1400/2500W
  • Heildarafl 7,35 kW

Eiginleikar

  • Brúartenging - sameinaðu tvær hellur fyrir ennþá stærra eldunarsvæði. Hentar fyrir stærri potta og pönnur.
  • SenseBoil - Borðið skynjar þegar suðan er komin upp og lækkar sjálfkrafa til þess að það sjóði ekki upp úr.
  • DirectTouch stjórnbúnaður með 17 þrepum fyrir hverja hellu
  • PowerBoost háhraðaspan á öllum hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
  • Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
  • Hitaminni - geymir hitastillingu í allt að 60 sekúndur ef þarf að lyfta pönnu eða hellist niður
  • EcoTimer tímaúr fyrir hverja hellu. Lækkar hitann hægt og rólega áður en tíminn klárast
  • Stop&Go aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum erindum
  • Hob2Hood – Stjórnaðu háfnum með helluborðinu. Möguleiki á þráðlausri tenginu beint í háfinn

Öryggi & þægindi

  • Barnalæsing
  • Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
  • Matt rispufrítt gler sem einstaklega auðvelt er að þrífa
  • Sjálfvirk stærðarskynjun á pottum / pönnum
  • Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
  • Viðvörunarljós fyrir heita hellu
  • Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast

Til fróðleiks og gagnleg ráð

  • Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum

 

Vörunúmer: TI64IB10IZ Flokkur: Eldunartæki, HELLUBORÐ, Spansuðuhelluborð,