Rio státar af yfir 30 ára reynslu í snyrtivörum og voru fyrstir til að framleiða laser-háreyðingarbúnað til heimilisnotkunar. Allar götur síðan hefur þeirra markmið verið að leyfa öllum að njóta stofugæða í heimahúsum með fjölbreyttu og vönduðu úrvali af snyrtitækjum.

Rio Beauty Fridge (e. Snyrtivörukælir) sameinar stílhreina hönnun og hagnýta geymslu sem passar auðveldlega inn í hvaða rými sem er. Haltu snyrtivörunum þínum skipulögðum og hafðu þær alltaf innan seilingar. Hurðin á kælinum er útbúin dimmanlegri LED-lýsingu og spegli sem gerir hann einnig að hentugum förðunarspegli. Rio snyrtivörukælirinn tryggir ferskleika og endingu á þínum uppáhalds snyrtivörum. Margar snyrtivörur er mælt með að geyma í kæli til að viðhalda gæðum og ferkleika varanna, t.d.:
- Tónera og sprey
- Maska
- Sólarvarnir
- Vörur sem innihalda C vítamín
- Náttúrulegar og lífrænar vörur.
- Serum og krem
Einnig er hægt að nota kælinn fyrir aðrar vörur eins og:
- Lyf (athugið alltaf leiðbeiningar sem fylgja þeim).
- Litlar drykkjardósir.
- Jógúrt og aðrar minni vörur
Helstu eiginleikar:
- Heldur snyrtivörum köldum og ferskum, sem lengir endingartíma þeirra.
- Skipulögð og aðgengileg innrétting fyrir serum, krem og fleira.
- Innbyggður LED-spegill nýtist bæði fyrir förðun og húðumhirðu
- Færanleg hilla, hægt að raða inn v0rum af ýmsum stærðum og gerðum.
- Með haldfangi, auðvelt að færa til.
Og það tæknilega:
- 8-15°C
- 6L rúmmál
- Hljóðlátur
- HxBxD: 35,5 x 24 x 21,8 cm
- Litur: Hvítur/Rósagyllt











