Vandaður innbyggður kæli- og frystiskápur frá AEG með öllum helstu nútíma þægindum. Skápurinn er búinn tvöfaldri kælipressu og NoFrost afþýðingarkerfi.
Almennt
- Orkuflokkur E
- Stafrænt stjórnborð með snertitökkum og LED skjá
- TwinTech - tvö aðskilin kælikerfi sem tryggja ferskleika og án þess að lofti úr frysti sé blandað í kæli og öfugt. Þannig haldast eplin þín fersk, ísinn í frystinum hélar ekki og klakarnir munu ekki fá keim af hvítlauk úr kælinum.
- Aðvörunarhljóð fyrir hátt hitastig
- Hljóð 35 dB(A)
- Sliding door hurðarfestingar.
- Lamir hægramegin, hægt að víxla hurðaropnun.
- HxBxD: 177,2 x 54,6 x 54,9 cm
Kælihluti
- Rúmmál 195 lítrar (nettó)
- Björt sparneytin LED lýsing í miðjum skápnum sem varpar ljósi á allar hillur
- DynamicAir Kælivifta tryggir jafnt kuldaflæði í öllum skápnum. Matvæli geymast lengur og við bestu mögulegu skilyrði.
- CoolMatic hraðkæling
- CustomFlex margbreytanleg innrétting - aðlagaðu innréttinguna eftir þínum þörfum
- Sjálfvirk afhríming
Frystihluti
- Rúmmál 62 lítrar (nettó)
- Fjögurra stjörnu frystir með hámarksgeymslugetu
- NoFrost tækni - Búnaður sem eyðir raka og kemur í veg fyrir hrímmyndun og klaka. Maturinn helst ferskari, geymist lengur og þú sleppur við að afhríma skápinn
- Quick Freeze hraðfrysting
- Frystigeta 5 kg á sólarhring