B-VARA. B-Vara er tæki sem hefur verið tekið til baka og getur verið útlitsgallað eða lítið notað. Tækið er yfirfarið og prófað og með fullri ábyrgð. Fáðu nánari upplýsingar hjá sölumanni.
Viðgerður ofn : Skipt um Iverterstýringu fyrir bylgjugjafa ofn profaður og sem nýr
IQ700 sambyggður ofn með örbylgjum, raddstýringu, TFT snertilitaskjá og HumidClean Plus hreinsibúnað. Hugmyndafræðin á bak við Siemens StudioLine línuna er einföld: Aðeins það besta af öllu. Með HomeConnect appinu getur þú stjórnað ofninum hvar sem er.
Það allra helsta:
- Sambyggður örbylgjuofn og ofn í einu tæki
- Oven Assist raddstýring láttu Alexa vita hvaða rétt þú ert að elda, eða notaðu HomeConnect appið og veldu rétta kerfið
- HumidClean hreinsun - settu dropa af uppþvottalegi í 400 ml af vatni sem þú hellir í botninn á ofninum. Veldu hreinsikerfið humidClean og láttu ofninn sjá um restina. Þegar kerfinu lýkur strýkur þú óhreinindin auðveldlega af með eldhúsrúllu eða uppþvottabursta
- 3,7 tommu TFT snertilitaskjár með myndrænni framsetningu
- HomeConnect - þráðlaus notkun með appi í gegnum snjallsíma eða spjaldtölvu
- Glerhandfang - Til að gefa ofninum einstakt fágað útlit er handfangið úr gleri sem nánast er ósýnilegt þegar horft er framan á ofninn
Og allt hitt:
- 15 eldunarkerfi: Undir- og yfirhiti, blástur og grillinnskot, stórt grill, lítið grill, undirhiti, forhitun diska, nærgætinn blástur, nærgætin upphitun, blástur, örbylgjur, undir- og yfirhiti ásamt blæstri, grill og örbylgjur, grill hálf breidd + örbylgjur + blástur
- 2 örbylgjukerfi: örbylgjuofn, blástur með örbylgjum (combi) sem sparar allt að 50% tíma
- Hitaval 30-230°C
- 5 örbylgjustillingar: 90W, 180W, 360W, 600W og boost 900W
- cookControl Plus - sjálfvirk eldunakerfi og hjálparkokkur fyrir mismunandi rétti
- LED lýsing
- Sjálfvirk hraðhitun
- Innbyggður kæliblásari
- Barnalæsing á hurð og stjórnbúnaði
- SoftMove ljúflokun á hurð
- Yfirborðhiti hurðar fer í hámark 40°C
Og það tæknilega:
- Rúmmál 45 lítrar
- Fylgihlutir 1 x grind og 1 x bökunarplata
- Heildarafl 3600W - 16 amper
- H x B x D: 45,5 x 59,4 x 54,8 cm (sjá teikningu)
- Litur Black Steel og StudioLine glerhandfang
