Siemens iQ700 Gufuofn með Örbylgjum

Lagerstaða: Sérpöntun (3 - 4 vikna afhending)

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

439.950 kr

Þessi Siemens ofn er hluti af 2023 IQ700 topplínunni með dökku stáli og svörtu gleri. Ofninn er búinn Fullsteam Plus gufukerfi örbylgjumTFT litasnertiskjá, humidClean gufuhreinsikerfi, ljúflokun og byltingarkenndum 4D hot air Plus blástursofni . Fullkominn kjöthitamælir og HomeConnect WiFi tenging er möguleg með sérstöku appi frá Siemens.

 

FullSteam Plus gufukerfi
 

Ofninn er beintengdur með vatnslögn svo þú þarft ekki að fylla á vatnið. Með FullSteam Plus tækninni nærð þú 120°C heitri gufu úr ofninum sem er fljótvirkara en gengur og gerist í öðrum gufuofnum (100°C) og gefur því fljótari og skilvirkari afköst.  

Með því að elda á FullSteam gufu nærð þú að viðhalda næringarefnum í t.d. grænmeti enn betur en á venjulegu baksturskerfi. 

Fullkomin sjálfvirkni

Hefurðu áhyggjur af því að ofelda matinn þinn? Sjálfvirkt bökunar- og steikingarkerfi í ofninum tryggja fullkomna eldun. Veldu uppáhalds réttinn þinn með skýrum TFT snertiskjánum og skynjarar ofnsins stjórna ferlinu. Veldu niðurstöðu úr ýmsum tillögum sem henta þínum óskum eða tíma. Ofninn notar sjálfkrafa réttar stillingar og aðgerðir og slekkur á sér þegar rétturinn er tilbúinn, svo þú getur slakað á, á meðan ofninn sér um eldamennskuna. 

Home Connect
 

Njóttu fullrar stjórnunar á ofninum þínum.
Viltu opna alla möguleika ofnsins þíns? Tengdu einfaldlega ofninn þinn við Home Connect appið  til að stjórna honum hvar sem er  – líka með raddstýringu Amazon Alexa eða Google Assist. Kveiktu og slökktu á eldunarkerfinu, breyttu stillingum og stjórnaðu upáhalds stillingum – án þess að vera í eldhúsinu.

Stillingar eru samstilltar á milli appsins og ofnsins og þú munt fá tilkynningar þegar kerfi er lokið. 

Voice control

Þú ert ekki  viss um hvaða eldunarkerfi hentar hvaða rétti? Segðu ofninum þínum í gegnum Amazon Alexa raddstýringartækið hvaða rétt þú vilt elda. Eða að öðrum kosti í gegnum Home Connect appið. Hjálparkokkurinn mun þá stinga upp á viðeigandi hitastigum eða eldunarkerfum og skipta beint yfir - flýtileið sem sparar þér tíma.

 

HumidCleanPLus

Bættu dropa af þvottaefni í 400 ml af vatni. Hellið þessari skollausn á miðjuna á köldu ofngólfinu. Stilltu einfaldlega á humidClean Plus hreinsunarkerfið og láttu ofninn sjá um restina. Um leið og prógramminu er lokið geturðu auðveldlega fjarlægt óhreinindin sem hafa mýkst af gufunni með rökum klút.

Það helsta:

  • ecoClean Plus gufuhreinsikerfi
  • FullSteam Plus gufukerfi, tengist með slöngu í vatnslögn svo þú þarft aldrei að fylla á ofninn.
  • Gufuvatnstankur - 1 Lítra gufu vatnstankur
  • TFT lita snertiskjár með skilmerkilegu aðgerðarvali, myndum og auðsjáanlegur frá öllum hliðum. 
  • 4D hotAir Plus heitur blástur - Blástursviftan tryggir jafna dreifingu á blæstri í ofninum  bæði bakstur og steikingu, jafnvel með 1 eða fleiri plötur/skúffur samtímis
  • CoolStart -  Er tíminn naumur? Með coolStart aðgerðinni má hita og elda frosinn mat hraðar en nokkru sinni fyrr þökk sé nýrri hitatækni þar sem engin þörf er lengur á að forhita ofninn
  • softMove ljúflokun á hurð 
  • roastingSensor Plus Kjöthitamælir - Vandaður kjöthitamælir sem mælir hitastigið nákvæmara. Stingdu mælinum í kjötið eða fiskinn og láttu ofninn sjá um restina. Hljóðmerki heyrist þegar maturinn er tilbúin.  
  • HomeConnect - með sérstöku Appi getur þú tengst ofninum í gegnum þráðlaust internet og stjórnað ofninum að vild. 

Og allt hitt:

  • 22 eldunarkerfi - 4D blástur, ØkoBlástur, undir-/yfirhiti, Eco undir-/yfirhiti, blástur og grill, stórt grill, pizzakerfi og coolStart, hraðhitun, langtímasteiking, undirhiti, halda heitu, diskahitun, steam+ 4D blástur, hotAir grill+ steam, Full steam, undir og yfir + steam, örbylgja ásamt ótal fleiri kerfa. 
  • Rafeindastýrð hitastilling 30-250°C. Nákvæmari hiti og minna hitaflökt
  • Barnalæsing á hurð og stjórnborði
  • Heilglerjuð hurð að innanverðu - hitnar max 30°C að utanverðu á almennum kerfum
  • Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
  • Fylgihlutir 1 gufuskúffa stór, 2x gufubakkar litlir, 1 grind, 1 bökunarplata, 1 bökunarskúffa og varioClip útdraganlegar brautir.

Og það tæknilega:

  • 47 lítra ofn (nettó)
  • Innbyggingarmál 45,5 x 56 x 56,8 cm
  • Utanmál HxBxD: 45,5 x 59,5 x 54,8
Vörunúmer: CS936GCB1 Flokkur: Eldunartæki, Innbyggðir,