Xiaomi 5 ryksuguvélmenni

Lagerstaða: Til á lager

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

129.950 kr

Fullsjálfvirk hleðslustöð

 

Njóttu þess að upplifa minna stress með fullsjálfvirkri hleðslustöð. Vélmennið sér um að tæma rykið, þrífa moppurnar og fylla á vatnstankinn alveg sjálft! Minnkaðu viðhaldið og auðveldaðu lífið 

Meiri tæming, minna ves

Xiaomi 5 státar af stóru rykhólfi og ennþá stærra tæmingarhólfi. 2.5l pokahólf gerir þér kleift að geyma ryk í allt að 75 daga áður en þú þarft að tæma.

Þrifin verða leikur einn!

Þrýstingur og snúningur koma saman til að fjarlægja óhreinindi. Moppan getur svo lyft sér allt að 15mm yfir teppi.

Ennþá minna ves

 
Xiaomi 5 tæmingar- og hleðslustöðin þrífur meira en bara gólfið. Innbyggt í stöðinni er þrif á moppuhausunum svo þú getur þvegið gólfið án þess að pæla í moppunum

Þriggja-þrepa þrif

Þetta öfluga þrifkerfi líkir eftir þvottavél með forþvotti, skoli og háhraða snúningsþurrkun

Innbyggð þurrkun

Ekki nóg með að stöðin þrífi moppurnar heldur tryggir hún líka loftflæði á meðan hún þurrkar moppurnar sem kemur í veg fyrir myglu og ólykt

Sjálfvirk hindranagreining

 

Myndavélakerfi að framanverðu gerir þessari klóku vél kleift að forðast aðskotahluti í vegi sínum á snjallan og öruggan hátt. Með sjálfvirkri hindranagreiningu getur vélmennið fundið hindranir og endurreiknað leiðina til að forðast þær. Inniskór, leikföng, sokkar og snúrur standa ekki lengur í vegi fyrir Xiaomi 5.

Snjallari bannsvæði
 

Með snjallari kortlagningu og sterkum skynjurum getur vélmennið sjálft komið auga á hvað gæti verið bannsvæði. Vélmennin eru gjörn á að festast undir stólum og borðum en með bannsvæðagreiningu getur tækið orðið fyrra til að stinga upp á hvert það ætti ekki að hætta sér

 

  • Öflug moppun
  • Sjálfvirk moppu lyfta - allt að 15mm
  • Sjálfvirk stöð sem tæmir ryk, þrífur moppur og fyllir á hreint skúringarvatn
  • Tvöfaldir moppuhausar
  • 100% gúmmí bursti
  • 20.000Pa² HyperForce™ sogkraftur
  • Ultrasonic teppa skynjari
  • App og radd stýring
  • Háþróaðar tímaáætlanir
  • Nákvæmur S-Cross skynjari sem skynjar aðskotahluti
  • Skynjari fellur niður í vélmenni til að komast undir húsgögn
  • No-Go bannsvæði
  • Litur - hvítt
  • Stórt rykhólf
  • 5200 mAh rafhlaða - endist í allt að 140 mínútur
Vörunúmer: BHR0834EU Flokkur: Ryksugur, RYKSUGUR, Ryksuguvélmenni,