
Fullsjálfvirk hleðslustöð
Njóttu þess að upplifa minna stress með fullsjálfvirkri hleðslustöð. Vélmennið sér um að tæma rykið, þrífa moppurnar og fylla á vatnstankinn alveg sjálft! Minnkaðu viðhaldið og auðveldaðu lífið

Meiri tæming, minna ves
Xiaomi 5 Pro státar af stóru rykhólfi og ennþá stærra tæmingarhólfi. 2.5l pokahólf gerir þér kleift að geyma ryk í allt að 75 daga áður en þú þarft að tæma.

Þrifin verða leikur einn!
Moppaðu allt að 400m² í einni atlögu. Þrýstingur og snúningur koma saman til að fjarlægja óhreinindi.
Ennþá minna ves

Þriggja-þrepa þrif
Þetta öfluga þrifkerfi líkir eftir þvottavél með forþvotti, skoli og háhraða snúningsþurrkun
Innbyggð þurrkun
Ekki nóg með að stöðin þrífi moppurnar heldur tryggir hún líka loftflæði á meðan hún þurrkar moppurnar sem kemur í veg fyrir myglu og ólykt
Sjálfvirk hindranagreining
Myndavélakerfi að framanverðu gerir þessari klóku vél kleift að forðast aðskotahluti í vegi sínum á snjallan og öruggan hátt. Með sjálfvirkri hindranagreiningu getur vélmennið fundið hindranir og endurreiknað leiðina til að forðast þær. Inniskór, leikföng, sokkar og snúrur standa ekki lengur í vegi fyrir Xiaomi 5 Pro.

Þrefalt myndavélakerfi
Háþróað leiðsögukerfi með RGB myndavél, tveimur innrauðum myndavélum og innrauðum 3D skynjurum til að skynja óhreinindi, aðskotahluti og aðstæður hverju sinni.
Snjallari bannsvæði
Með snjallari kortlagningu og sterkum skynjurum getur vélmennið sjálft komið auga á hvað gæti verið bannsvæði. Vélmennin eru gjörn á að festast undir stólum og borðum en með bannsvæðagreiningu getur tækið orðið fyrra til að stinga upp á hvert það ætti ekki að hætta sér
- Öflug moppun
- Sjálfvirk moppu lyfta - allt að 20mm
- Sjálfvirk stöð sem tæmir ryk, þrífur moppur og fyllir á hreint skúringarvatn
- Tvöfaldir moppuhausar
- 100% gúmmí bursti
- 20.000Pa² HyperForce™ sogkraftur
- Ultrasonic teppa skynjari
- App og radd stýring
- Háþróaðar tímaáætlanir
- Nákvæmur þrívíddarskynjari sem skynjar aðskotahluti
- Skynjari fellur niður í vélmenni til að komast undir húsgögn
- 5MP HD myndavél með beinu streymi
- No-Go bannsvæði
- Litur - hvítt
- Stórt rykhólf
- 5200 mAh rafhlaða - endist í allt að 140 mínútur
- Skúrar allt að 400m² í einni atlögu




















