KitchenAid kynntu fyrst sínar hrærivélar árið 1919 og síðan þá hafa þær orðið að þekktum vélum sem bæði atvinnu kokkar og áhuga bakarar nota. Hrærivélin hefur farið í gegnum miklar breytingar og endurbætur, allt til þess að gera vélina endingarbetri og öflugri. KitchenAid Artisan 4.8L hrærivélin er þægileg í notkun og mun verða topp tækið í eldhúsinu þínu.
Þeytari
Þessi 6 víra þeytari er fullkominn til þess að þeyta rjóma og sósur og gera dýfur.
Hnoðari
Hinn fullkomni hnoðari fyrir allt deig. Hnoðarinn er úr áli með öflugri non-stick nylon klæðningu sem tryggir það að deigið festist ekki við. Einnig er hægt að setja hnoðarann í uppþvottavél.
Hrærari
Tilvalið tól fyrir kökublöndur, kökukrem og jafnvel stappaðar kartöflur. Hrærarinn er úr áli með öflugri non-stick nylon klæðningu sem tryggir það að blandan festist ekki við. Einnig er hægt að setja hann í uppþvottavél.
4.3L skál
Góð skál er nauðsynleg fyrir baksturinn. Hún tryggir auðveldari vinnslu með hráefnið og einnig fylgir minni sóðaskapur. Skálin er gerð úr ryðfríu stáli með þægilegu og notandavænu handfangi.
- Hljóðlát
- Auðveld að þrífa
- Fylgihlutir: Þeytari, hnoðari og hrærari
- Ekki má þvo þeytara í uppþvottavél.
- 250W mótor
- 10 hraðastillingar
- Stærð: H 35,8 cm x B 35,3 cm x D 22,1 cm