Þráðlausi Saxarinn úr KitchenAid Go seríunni með rafhlöðu hrærir, blandar, eða maukar.
Meðfylgjandi endurhlaðanlega 12 V rafhlaða gefur þér allt að 25 mínútur í notkun og útilokar þörfina á rafmagnssnúru.
Öll KitchenAid Go tæki geta verið knúin af sömu rafhlöðu sem hægt er að fjarlægja til að auðvelda skipti og sveigjanleika. Haltu áfram að skapa með KitchenAid.

KitchenAid GO - heil fjölskylda af frelsi
KitcehnAid Go serían er fáanleg í hinum ýmsu tækjum. Handþeytari, safapressa, töfrasproti, saxari, blandari og handryksuga.

Öflug rafhlaða
KitchenAid GO línan er öll þráðlaus og kemur með öflugri rafhlöðu sem þú getur hlaðið með USB-C tengi (hefðbundið farsíma tengi).
Rafhlaðan er allt að 3 klukkustundir að fullhlaðast. Smelltu á tvo hliðarhnappa til þess að sjá eftirstöðvar á rafhlöðunni.
Nákvæm blöndun, ekkert sull
Tvær hraðastillingar og púlsstilling ættu að uppfylla allar þínar þarfir þegar þú þarft að saxa og eða mauka með KitchenAid GO Saxaranum.


Notaðu saxarann sem þeytara
Með því að skipta út hnífnum fyrir þeytarafylgihlut getur þú notað saxarann til þess að þeyta t.d. rjóma eða egg

- Þráðlaus - endurhlaðanleg rafhlaða
- Allt að 60 mínútna rafhlöðuending
- 3 klukkustundir að ná fullri hleðslu (miðað við tóma rafhlöðu)
- Þeytarar sem þola uppþvottavél
- 1,18 Lítra skál
- Hlaðið með USB-C (snúra fylgir með, vegginnstunga fylgir ekki)










