B-VARA. B-Vara er tæki sem hefur verið tekið til baka og getur verið útlitsgallað eða lítið notað. Tækið er yfirfarið og prófað og með fullri ábyrgð. Fáðu nánari upplýsingar hjá sölumanni.
Ástæða: 30 daga skilaréttur nýttur, umbúðir rofnar
Dyson V8 snýr aftur í glænýjum og uppfærðum búning! Lengri rafhlöðuending og betri sogkraftur en nokkru sinni fyrr.

Motorbar™ aðalhaus
Öflugur haus fyrir alhliðaþrif á harðviðar-, flísa-, stein-, eða teppalögðu gólfi.

Auðvelt að breyta í handryksugu
Auðvelt er að breyta Dyson V8 skaftryksugunni í handryksugu og skella á hana minni stútum fyrir smærri verk eins og mylsnu eftir matartímann eða jafnvel í bílinn.
Auðveld geymsla
Veggfesting fyrir ryksuguna fylgir, og þar getur þú geymt alla fylgihluti ryksugunar á einum stað.
Létt og meðfærileg
Þar sem ryksugan er einstaklega létt og meðfærileg er auðvelt að nota hana til þess að ryksuga ofan á t.d. gardínum, hátt uppi á skápum eða öðru.
Einstaklega kraftmikil
Mótorinn í Dyson V8 Cyclone er einstaklega kraftmikill og hljóðlátur með 15 Cyclones sem aðskilja ryk í hólfinu.
Það tæknilega:
- 150AW sogkraftur - 30% betri en fyrri módel
- Allt að 60 mínútna rafhlöðuending á einni hleðslu
- 4 klukkustundir að full hlaðast frá tómri rafhlöðu
- 3 hraðastillingar
- Orkusparnaður (ECO)
- Miðlungs
- MAX
- Einstaklega lipur í notkun
- Litlir hausar fylgja með
- Hægt að breyta í handryksugu
- Veggfesting fylgir
- Snertilaus tæming á rykhólfi
- 2 ára ábyrgð





