Eldhúsvaskur án gats fyrir blöndunartæki, í nútímalegri ferkantaðri hönnun. Innri, ávöl horn fylgja ytri lögun vasksins og skapa samræmda og fallega hönnun. Ávölu hornin að innan gera einnig vaskinn auðveldari í þrifum.
Svokallaður kuvertbotn tryggir að vatnið renni auðveldlega niður í frárennslið.
Hægt er að setja vaskinn upp á mismunandi vegu:
- Hefðbundna niðurfellingu í borðplötu
- Undirlímdur t.d. í steinplötu
- Sléttfelldur við borðplötuna
Botnventill fylgir ásamt vatnslás og festiklemmur fyrir niðurfellingu.
Vaskurinn er framleiddur úr ryðfríu stáli með PVD-yfirborðsmeðferð í litnum Gunmetal.
PVD stendur fyrir “Physical Vapour Deposition” og er þrýsti- og gufuborin yfirborðsmeðferð sem skapar mjög slitsterkt yfirborð.
Nánari tæknilýsing;
