Tilboð
-21%

Bialetti Pregiato Kaffi 250g malað

Lagerstaða: Til á lager

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

1.150 kr 1.450 kr

Kaffið frá Bialetti er einstakt. Bialetti vil meina að ristun sé eins konar list sem fangar ilm upprunans. Bialetti leggur því sérstaka áherslu á ristunarferlið og að það sé byggt á hægri og nákvæmri ristun. Karakter baunanna er þannig fangaður og lyktin tengir mann við uppruna þeirra. Kaffið frá Bialetti er búið til með mokkakönnuna í huga á þann hátt að það er malað í kornastærð sem hentar mokka og eða pressukönnum einstaklega vel. Bialetti kaffinu er svo pakkað í sérstakar pakkningar sem viðhalda bragði og ferskleika sem best.

Pregiato er 100% Arabica kaffi sem er akkúrat það sem Ítalinn myndi mæla með. Létt og mild blanda með keim af blómum og þurrkuðum ávöxtum. Fullkomið fyrir fólkið sem drekkur nokkra bolla á dag.

Koffínlausa kaffið hefur einnig slegið í gegn. Það heitir Deka og er í græna pakkanum. Deka er miðlungsristað með arómatískum tónum af korni og ristuðu brauði. Það er gaman að geta fengið sér gott kaffi að kvöldi til án þess að það innihaldi koffín og hafi þannig áhrif á svefninn.

Intenso kaffið er síðan dökkristað og sérstaklega þróað til að ýta undir ilminn af ristuðu brauði og kakói. Intenso er það sem inniheldur mesta koffínið af Bialetti kaffitegundunum og er í dökkbláa pakkanum.

Classico kaffið er síðan alltaf sígilt og hentar flestum vel. Classico kemur í rauða pakkanum og er meðalristað með sætum ilm af blómum og hnetum.

Einnig er hægt að fá súkkulaðikaffi, hnetukaffi og vanillukaffi fyrir þá sem vilja smá tilbreytingu.

Vörunúmer: 096080356 Flokkur: Kaffi, Matur,