Samsung Add-wash Þvottavél

Lagerstaða: Til á lager

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

109.950 kr

Frábær þvottavél frá Samsung fyrir meðalstórar fjölskyldur. Tekur 9 kíló og vindur 1400 snúninga. Með AddWash lúgunni getur þú bætt við þvotti eftir að vélin er farin af stað, allt að því að hún byrjar á þeytivindunni. 

Það helsta: 

  • XL 9 kg hleðslugeta
  • 1400 snúninga stillanlegur vinduhraði 
  • Kolalaus Digital Inverter hágæðamótor - lengri ending, minna slit, hljóðlátari og hraðvirkari. 10 ára ábyrgð.
  • Hygienic Cleaning - notaðu gufukerfi til að sótthreinsa þínar flíkur
  • BubbleSoak™ - valkvætt forþvottakerfi og hentar fatnaði með erfiða bletti. Þvotturinn er lagður í bleyti í sápufroðu, sem fjarlægir blettina
  • 15 mínútna hraðkerfi -  fyrir lítið magn og minna óhreint tau
  • Diamond Drum tromla - lágmarkar slit og verndar viðkvæman fatnað
  • Eco Drum Clean – 70°C tromluhreinsun sem heldur vélinni lyktalausri og fyrirbyggir sveppagróður og óhreinindi í þvottakari
  • Smart Check – sjálfvirk bilanaleit með aðstoð síma
  • Fuzzy Logic tækni - aðlagar þvottatíma og vatnsnotkun að þörf og kemur í veg fyrir að fötin þín séu ofþvegin
  • Góð sérkerfi þ.á.m.ull, barnaföt og rúmföt

Og allt hitt: 

  • ​​​LED skjár sem sýnir framvindu þvottakerfis
  • Framstillt ræsing möguleg 1-24 klukkustundir
  • XL 32 cm hurðarop með allt að 160° opnun
  • Barnalæsing á hurð og stjórnborði
  • Þvottakerfi: Eco 40-60°C, bómull, gerfiefni, Drum Clean, blandaður þvottur, 15 mín hraðkerfi, gufukerfi, litaður þvottur, sængurföt, kaldur þvottur, skolun, dæling/vinda
  • Val um Intensive, forþvott,  Bubble Soak, Easy Iron
  • Mishleðsluskynjun - vélin fylgist grannt með þyngdarmisjöfnun í tromlunni og leitast við að jafna tauið út og lágmarka átök við þeytivindu
  • Öflug skoltækni sem byggir á skolun og stuttri vindu til skiptis
  • Keramíkhúðað hitaelement - betri ending og minni tæring
  • Stay Clean Drawer - sjálfhreinsandi skúffa fyrir þvottaefni

Og það tæknilega: 

  • Hljóð aðeins 53 dB(A) í þvotti og 72 dB(A) í þeytivindu
  • Orkunýtni D - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
  • Þvottahæfni A
  • Vinda B
  • H x B x D: 85 x 60 x 55 cm
  • Hámarksdýpt með slöngum og hurð 63,5 cm 

Aukaefni

  • Leiðbeiningar á ensku má nálgast hér 

Hållbar prestanda

Vörunúmer: WW90T4540AE/LE Flokkur: Þvottahús, ÞVOTTAVÉLAR, Venjulegar,