RAW X1000 er fyrirferðaminni blandari úr RAW fjölskyldunni en gefur þeim stærri lítið eftir í afli. Hann fer létt með að mala ís og frosna ávexti. Kraftmikill 1000W mótorinn er 1,3 hestöfl og kannan tekur 1,2 lítra og án BPA efna. 6 blaða hágæðahnífur snýst 10.000-30.000 snúninga á mínútu.
- Kraftmikill blandari sem snýst allt að 30.000 snúninga á mínútu með sterkbyggðum 1000W / 1,3 hestafla hágæðamótor.
- Óbrjótanleg BPA frí 1,2 lítra Carbon plastkanna.
- 6 blaða hárbeittur hnífur úr kolefnisríku stáli sem heldur biti sínu í áraraðir.
- 3 ára ábyrgð
- Öryggislok
- Hljóðlátur
- SlowStart hægræsing
- 46 cm hár, 19 cm breiður og 23 cm á dýpt. Vegur 4,7 kg
RAW X1000 TURBÓ er kraftmikill blandari sem nær allt að 30.000 snúningum á mínútu og ræður léttilega við frosna ávexti, klaka og fræ. Þessi blandari er því tilvalinn í hristinga, smoothies, ávaxtablöndur, hnetusmjör og hnetumjólk og heitar súpur. Hann hentar því vel í hráfæði og þolir notkun í áraraðir.
Kraftmikill 1000W 1,3 hestafla mótor
Óskir þú eftir að fá örfína og silkimjúka blöndu, jafnvel úr harðgerðu hráefni, er þörf á aflmiklu tæki sem ræður vel við verkið. Þessi blandari er ekki aðeins búinn einum kraftmesta mótornum á markaðnum sem skilar 2,5 hestöflum, heldur er einnig vandað til verks við byggingu blandarans. Allur drif-búnaður, hljóðeinangrun og öryggisbúnaður er af vönduðustu gerð. Notast er við SKS kúlulegur frá Þýskalandi og Eeastman Tritan Polykarbonat plastkönnu án BPA efna sem er nær óbrjótanleg.
6 blaða flugbeittur hnífur
Hnífurinn er margtenntur og með 6 blöðum og ræður jafnvel við mikið magn af hnetum, korni, baunum og klökum. Hann er gerður úr kolefnaríku stáli og heldur biti sínu um ókomin ár.
Einfaldur í notkun
Hægt er að stilla hraðann að vild með hraðastýringunni og hægt er að velja flýtihraðainngjöf með einföldum hætti.