Nikola Tesla Libra spanhelluborð og vifta

Lagerstaða: Sérpöntun (3 - 4 vikna afhending)

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

449.950 kr

Nikola Tesla eru fyrstu spanhelluborðið frá Elica á Ítalíu, með innbyggðri eldhúsviftu. 

Svona virkar NikolaTesla helluborðin
Helluboðin frá NikolaTesla sameinar tvö tæki í einu þar sem í miðju spanhelluborðinu hefur haganlega verið komið fyrir aflmikilli viftu sem dregur loftið niður. Svipmikil hönnun einkennir þetta helluborð og það hagnýtir nýjustu tækni til að hámarka notagildi og endingu. Með þráðlausri tengingu tala þessi tvö tæki saman, þannig að viftan móttekur upplýsingar frá helluborðinu og ákveður þannig sjálfkrafa sogstyrkinn eftir þörf. Með NikolaTesla getur þú notið þess að útbúa góðan mat án þess að leiða hugann að fitu, gufu og lykt í eldhúsinu.

NikolaTesla LIBRA er fyrsta helluborðið með innbyggrðri vog. Hægt er að stilla inn þyngd pottsins eða pönnurnar og þannig vita nákvæmlega hversu mikið af hverju hráefni er notað. Sparaðu þér þannig tíma og tryggðu að rétt magn af hráefni sé notað í uppáhalds uppskriftunum þínum.

Fáanlegt með kolasíu eða fyrir útblástur.

Gerð, hönnun og tækni

  • 83 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
  • TotalBlack án grafík og undirlakkað í svörtu svo að ljós nái ekki í gegn
  • Rautt LED stjórnborð sýnilegt þegar kveikt er á borðinu
  • Án kants - hentar til niðurfræsingar í borðplötu eða til að liggja ofan á borðplötu
  • Innbyggð vog - vertu viss um að vera með rétt magn hráefna í uppskriftina. Með einum takka getur þú núna vigtað hráefnin á hellunni.
  • E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur 

Stærðir

  • Utanmál H x B x D: 21 x 83 x 51,5 cm
  • Innbyggingarmál fyrir niðurfræsingu - sjá teikningu 
  • Stærðir hellna 
  • 1 x ferköntuð hella 20x18 cm 2100W / 3000W með Power Boost
  • 1 x ferköntuð hella 20x18 cm 1600W / 1850W með Power Boost
  • 1 x hringlaga hella 20 cm 2300W / 3000W með Power Boost
  • 1 x hringlaga hella 16 cm 1400W 
  • Heildarafl 7,4 kW

Eiginleikar helluborðs

  • Snertitakkar með 9 þrepa sleðasnerting
  • PowerBoost háhraðaspan á þremur hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
  • Intelligent Induction tækni - spanhellurnar nema hvort og hvar pottur/panna er á borðinu og stjórnborðið kveikir sjálfkrafa á stjórnbúnaði fyrir viðkomandi hellu
  • Stop&Go aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum erindum
  • Keep Warm aðgerð með forstilltu hitastigi 42°C
  • Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
  • Potta- og stærðarskynjari
  • Mínútuúr 0-99 mínútur 

Eiginleikar viftu

  • Samræmd einkunn Evrópusambandsins
  • Sogkraftur A
  • Síun B
  • Sogkraftur með kolasíu
    • 175-384 rúmmetrar á klst
    • 422 rúmmetrar á háhraðastillingu
  • Sogkraftur fyrir útblástur
    • 195-398 rúmmetrar á klst
    • 610 rúmmetrar á háhraðastillingu
  • Hljóð með kolasíu
    • 54-71 db(A)
  • Hljóð fyrir útblástur
    • 47-61 db(A)
  • 9 hraðastillingar + háhraðastilling
  • Keramískur lykteyðir sem hægt er að þrífa
  • Gufuskynjun

Öryggi & þægindi

  • Barnalæsing
  • Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
  • Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
  • Viðvörunarljós fyrir heita hellu
  • Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast

Til fróðleiks og gagnleg ráð

  • Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum

Leiðbeiningar má nálgast hér

Módel:
NIK-LIBRA-WH/F/83 - fyrir kolasíu - kr.449.900,-
NIK-LIBRA-WH/A/83 - fyrir útblástur- kr.399.900,-