Siemens iQ700 ofn

Lagerstaða: Til á lager

Viltu fá sent eða sækja til okkar?
Taktu vöruna frá eða fáðu hana senda hvert á land sem er gegn vægu gjaldi. Nánari upplýsingar má nálgast hér

199.950 kr

Þessi Siemens ofn er hluti af IQ700 topplínunni og er búinn 2,8" TFT litasnertiskjá, activeClean Pyrolyse brennslusjálfhreinsbúnaði, ljúflokun og byltingarkenndum blástursofni með 4D loftdreifingu. 

      

Það allra helsta:

  • activeClean - með þremur hreinsikerfum. ofninn læsist og brennir upp til agna alla fitu og óhreinindi við 500°C. Plötuberar, ofnskúffa og bökunarplata þola hreinsikerfið
  • TFT 2,8" snertiskjár með skilmerkilegu aðgerðarvali og auðsjáanlegur frá öllum hliðum 
  • 4D heitur blástur (sjá myndband að neðan) -  Blástursviftan í baki ofnsins snýst til beggja átta og tryggir þannig jafnari hitadreifingu og betri árangur við bæði bakstur og steikingu, jafnvel við 1 eða fleiri plötur/skúffur samtímis
  • coolStart -  Er tíminn naumur? Með coolStart aðgerðinni má hita og elda frosinn mat hraðar en nokkru sinni fyrr þökk sé nýrri hitatækni þar sem engin þörf er lengur á að forhita ofninn
  • softMove ljúflokun á hurð 
  • Kjöthitamælir  - stingdu mælinum í kjötið eða fiskinn og láttu ofninn sjá um restina. Hljóðmerki heyrist þegar maturinn er tilbúin. 
  • Útdraganlegar brautir á tveimur hæðum - þarf að fjarlægja fyrir sjálfhreinsibúnað 

Og allt hitt:

  • 13 eldunarkerfi - 4D blástur, ØkoBlástur, undir-/yfirhiti, Eco undir-/yfirhiti, blástur og grill, stórt grill, pizzakerfi og coolStart hraðhitun
  • Rafeindastýrð hitastilling 30-300°C. Nákvæmari og minna hitaflökt
  • Barnalæsing á hurð og stjórnborði
  • Heilglerjuð hurð að innanverðu - hitnar max 30°C að utanverðu á almennum kerfum
  • Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
  • Fylgihlutir 1 skúffa, 1 grind

Og það tæknilega:

  • 71 lítra ofn (nettó) - 31% stærri en hefðbundinn ofn
  • Orkuflokkur A+ 
  • Innbyggingarmál 59 x 56 x 55 cm
  • Utanmál HxBxD: 59,5 x 59,5 x 54,8
Vörunúmer: HB675GIS1S-26 Flokkur: Eldunartæki, OFNAR,
Vörumerki Siemens
Modelnúmer HB675GIS1S
Orkunýtnistuðull EEI 87,1
Orkunýtniflokkur A
Orkunotkun fyrir hefðbundinn ham (kWh/lotu) 0,90
Orkunotkun fyrir blástursham (kWh/lotu) 0,74
Fjöldi hólfa 1
Varmagjafi Rafmagns
Rúmmál hólfs bakarofns í lítrum (L) 71