Siemens BlackSteel frystiskápur með freshSense tækni sem tryggir stöðugt og jafnt hitastig og noFrost tæknin gerir affrystingu óþarfa með öllu þar sem engin hrímmyndun á sér stað. iceTwister klakavél bigBox skúffur.
Það helsta:
- noFrost sjálfvirk affrysting - engin hrímmyndun í skápnum, enginn frostþurrkur og þú þarft aldrei að affrysta skápinn
- iceTwister klakavél - sem þú fyllir á með vatni
- FreshSense tækni - skynjarar tryggja jafnan stöðugan kulda í öllum skápnum óháð því hve oft skápurinn er opnaður
- multiAirflow kælivifta - tryggir jafna dreifingu á köldu lofti um skápinn
- BigBox skúffur - þú kemur auðveldlega fyrir lambalærinu og kalkúninum í BigBox skúffurnar
- LED lýsing - björt og óhindruð LED lýsing
Og allt hitt:
- Stjórnborð með snertitökkum og hvítum LED skjá
- Aðvörunarkerfi með hljóði og ljósi við fall hitastigs og opna hurð
- easyOpen léttopnun
- Flott lóðrétt stangarhandfang
- superFreeze hraðfrysting
- EasyClean fingrafarafrítt stál
- 3 kæliblokkir fylgja
Og það tæknilega:
- Orkuflokkur E
- Hægriopnun - hægt að víxla opnun
- Rúmmál 242 lítrar nettó
- Hljóð 39 dB(A)
- H x B x D: 186 x 60 x 65 cm