NIK-SWITCH-BL/F/83

Nikola Tesla Switch spanhelluborð og vifta

Verð: 549.950 kr.
Tilboðsverð: 399.950 kr.

Nikola Tesla eru fyrstu spanhelluborðið frá Elica á Ítalíu, með innbyggðri eldhúsviftu.  Svona virkar NikolaTesla helluborðin Helluboðin frá NikolaTesla sameinar tvö tæki í einu þar sem í miðju spanhelluborðinu hefur haganlega verið komið fyrir aflmikilli viftu sem dregur loftið niður. Svipmikil hönnun einkennir þetta helluborð og það hagnýtir nýjustu tækni til að hámarka notagildi og endingu. Með þráðlausri tengingu tala þessi tvö tæki saman, þannig að viftan móttekur upplýsingar frá helluborðinu og ákveður þannig sjálfkrafa sogstyrkinn eftir þörf. Með NikolaTesla getur þú notið þess að útbúa góðan mat án þess að leiða hugann að fitu, gufu og lykt í eldhúsinu. Hljóðlát vifta, kraftmiklar hellur og glæsilegt TouchSlider stjórnborð fyrir hverja hellu  eru helstu kostir NikolaTesla SWITCH.  Fáanlegt með kolasíu eða fyrir útblástur.

Gerð, hönnun og tækni
  • 83 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
  • TotalBlack án grafík og undirlakkað í svörtu svo að ljós nái ekki í gegn
  • Rautt LED stjórnborð sýnilegt þegar kveikt er á borðinu
  • Án kants - hentar til niðurfræsingar í borðplötu eða til að liggja ofan á borðplötu
  • Fyrir kolasíu
  • E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur 
  • Stærðir
  • Utanmál H x B x D: 21 x 83 x 51,5 cm
  • Innbyggingarmál fyrir niðurfræsingu - sjá teikningu 
  • Stærðir hellna 
  • 4 x ferköntuð hella 20x18 cm 2100W / 3000W með Power Boost
  • Heildarafl 7,4 kW
  • Eiginleikar helluborðs
  • Touch Slider með 9 þrepa sleðasnerting fyrir hverja hellu
  • PowerBoost háhraðaspan á þremur hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
  • Intelligent Induction tækni - spanhellurnar nema hvort og hvar pottur/panna er á borðinu og stjórnborðið kveikir sjálfkrafa á stjórnbúnaði fyrir viðkomandi hellu
  • Stop&Go aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum erindum
  • Keep Warm aðgerð með forstilltu hitastigi 42°C
  • Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
  • Potta- og stærðarskynjari
  • Mínútuúr 0-99 mínútur 
  • Eiginleikar viftu
  • Samræmd einkunn Evrópusambandsins
  • Sogkraftur A
  • Síun B
  • Sogkraftur
  • 150-365 rúmmetrar á klst
  • 590 rúmmetrar á háhraðastillingu
  • Hljóð 37-59 dB(A)
  • 8 hraðastillingar + 2 háhraðastillingar
  • Keramískur lykteyðir sem hægt er að þrífa
  • Gufuskynjun
  • Öryggi & þægindi
  • Barnalæsing
  • Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
  • Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
  • Viðvörunarljós fyrir heita hellu
  • Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast
  • Til fróðleiks og gagnleg ráð
  • Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum
  • Leiðbeiningar má nálgast hér og nánari teikningar og upplýsingar hér.

    Módel: NIK-SWITCH-BL/F/83 - fyrir kolasíu - kr.549.900,- NIK-SWITCH-BL/A/83 - fyrir útblástur- kr.499.900,-