EW6C527G2-26

Electrolux PerfectCare þurrkari

94.950 kr.

Þessi SensiCare þurrkari frá Electrolux er búinn fullkomnum rakaskynjara sem mælir stöðugt rakastigið svo að þvotturinn er aldrei þurrkaður mínútu lengur en þurfa þykir. Tekur 7 kíló af þvotti og búinn mörgum sérkerfum fyrir nær allar gerðir af þvotti. 

Það helsta:
  • 7 kg hleðslugeta 
  • Barkalaus - raka er safnað saman í tank eða dælt út með frárennslisslöngu
  • Rakaskynjari - þú velur þurrkstigið allt frá strauþurru til extra þurrt og þurrkarinn stoppar þegar þvotturinn er orðinn þurr
  • Góð sérkerfi þ.á.m. sængur, sængurföt, gallabuxnakerfi og íþróttafatnaður
  • Og allt hitt: 
  • LED skjár sem sýnir eftirstöðvar tíma
  • Hljóðmerki - ef þú vilt lætur þurrkarinn þig vita með hljóðmerki þegar þurrki lýkur 
  • XXL hurðarop með allt að 160° opnun - hægt að víxla opnun með aðstoð fagmanns
  • Snýst til beggja átta - losar um þvottinn og minnkar krumpur
  • Öflug krumpuvörn með niðurkælingu á taui og snýr þvottinum reglulega eftir að kerfi lýkur 
  • Framstillt ræsing möguleg  1-20 klukkustundir
  • Barnalæsing á  stjórnborði möguleg
  • Hægt að veljum að tæma vatnstank eða tengja frárennslisslöngu fyrir affallsvatn (fylgir með)
  • Þurrkkerfi: bómull, bómull eco, gerfiefni, viðkvæmur þvottur, strauléttur fatnaður, uppfrískun, skyrtukerfi, sængur/teppi, sængurfatnaður, íþróttafatnaður, gallaefni og blandaður þvottur
  • Og það tæknilega:
  • Hljóð 66 dB(A)
  • Tromlustærð 104 lítrar
  • Orkunýtni B (Orkunotkun 504 kW á ári)
  • H x B x D: 85 x 59,5 x 54 cm (full dýpt 60 cm)
  •