EW8H658B8-26

Electrolux þurrkari

134.950 kr.

PerfectCare 800 þurrkari frá Electrolux sem notar helmingi minni orku en eldri gerðir í orkuflokki B. Tekur heil 8 kíló af þvotti og hentar því stærri og meðalstórum fjölskyldum. Hann er búinn mörgum sérkerfum fyrir nær allar gerðir af þvotti og fer einstaklega vel með þvottinn þökk sé PerfectCare meðhöndlun sem fer gætilega með þvottinn og ofþurrkar hann ekki. PerfectCare 800 þurrkarar eru einnig með sérstökum kerfum fyrir ull og annan viðkvæman þvott.

Það helsta:
  • 8 kg hleðslugeta 
  • Varmadæla - Með nýrri tækni notar þessi þurrkari allt að helmingi minni orku en þurrkarar í orkuflokki B
  • Kolalaus mótor - Slitsterkari og endingarbetri mótor sem notar ennþá minna rafmagn og þurrkar hraðar
  • Barkalaus - raka er safnað saman í tank eða dælt út með frárennslisslöngu
  • Rakaskynjari - þú velur þurrkstigið allt frá strauþurru til extra þurrt og þurrkarinn stoppar þegar þvotturinn er orðinn þurr
  • SoftDrum tromla sem lágmarkar slit og verndar viðkvæman fatnað. Betra loftflæði um þvottinn sem dregur úr krumpum og lágmarkar þörf fyrir að strauja.
  • Góð sérkerfi þ.á.m. sængur, sængurföt, gallabuxnakerfi, ull og íþróttafatnaður
  • Og allt hitt: 
  • LED skjár sem sýnir eftirstöðvar tíma
  • Hljóðmerki - ef þú vilt lætur þurrkarinn þig vita með hljóðmerki þegar þurrki lýkur 
  • XXL hurðarop með allt að 160° opnun - kemur frá verksmiðju með vinstri opnun, hægt að víxla opnun
  • Snýst til beggja átta - losar um þvottinn og minnkar krumpur
  • Öflug krumpuvörn með niðurkælingu á taui og snýr þvottinum reglulega eftir að kerfi lýkur 
  • Framstillt ræsing möguleg  1-20 klukkustundir
  • Barnalæsing á  stjórnborði möguleg
  • Hægt að veljum að tæma vatnstank eða tengja frárennslisslöngu fyrir affallsvatn (fylgir með)
  • Uppfyllir Woolmark Silver staðalinn um góða meðhöndlun ullarfatnaðar 
  • Þurrkkerfi: bómull, bómull eco, gerfiefni, viðkvæmur þvottur, strauléttur fatnaður, uppfrískun, skyrtukerfi, sængur/teppi, sængurfatnaður, íþróttafatnaður, gallaefni, ull og blandaður þvottur
  • Og það tæknilega:
  • Hljóð 66 dB(A)
  • Tromlustærð 118 lítrar
  • Orkunotkun 235 kW á ári
  • H x B x D: 85 x 59,6 x 63,8 cm (full dýpt 66,2 cm)