Spanhelluborð frá Eico í Danmörk, búið tækni morgundagsins.
Gerð, hönnun og tækni
58 cm keramik helluborð með spansuðutækni + Power Boost á öllum hellum
TotalBlack án grafík og undirlakkað í svörtu svo að ljós nái ekki í gegn
Rautt LED stjórnborð sýnilegt þegar kveikt er á borðinu
Með jafnháum glerkanti allan hringinn - hentar til niðurfræsingar í borðplötu
E.G.O. þýskur hágæðastýribúnaður og hellur
Stærðir
Utanmál H x B x D: 4,7 x 59 x 52 cm
Innbyggingarmál B x D 56 x 49 cm
Stærðir hellna
2 x 21 cm 2300W/3700W
2 x 18 cm 1850W / 3000W
Heildarafl 7,4 kW
Eiginleikar
SliderTouch stjórnbúnaður með 10 þrepum fyrir hverja hellu
PowerBoost háhraðaspan á öllum hellum - tilvalið til snöggsteikingar, ná upp suðu eða í WOK rétti
Stop&Go aðgerð - setur borðið í dvala á meðan þú sinnir óvæntum erindum
Keep Warm aðgerð með forstilltu hitastigi 42°C eða 70°C. 42°C er til dæmis tilvalið til að bræða súkkulaði og 70°C hentar til að halda mat heitum
Suðusjálfvirkni - nær t.d. suðu á kartöflum - og lækkar svo hitann eftir stutta stund
Potta- og stærðarskynjari
Mínútuúr 0-99 mínútur
Öryggi & þægindi
Barnalæsing
Sjálfvirkur öryggisútsláttur eftir ákveðinn tíma
Sjálfvirk stærðarskynjun á pottum / pönnum
Ekki er hægt að kveikja á hellu nema að pottur sé til staðar
Viðvörunarljós fyrir heita hellu
Yfirborðshiti fer aldrei yfir 100°C (ólíkt venjulegum keramík hellum 600°C) og því brenna matarleifar ekki fast
Til fróðleiks og gagnleg ráð
Spansuða byggir á hættulausri tækni þar sem orkan leysist úr læðingi í botni pottsins. Kostir spansuðu eru ótvíræðir. Það er allt í senn tímasparandi, orkunýting er mun betri, það er öruggara, nákvæmara og auðveldara í þrifum
Leiðbeiningar á ensku og dönsku má nálgast hér
Rafmagnskapall fylgir ekki